flugfréttir

Alvarlegur skortur á flugumferðarstjórum framundan á Indlandi

24. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:26

Frá flugvellinum í Delhi

Óttast er að flugöryggi verði ógnað á næstunni í Indlandi þar sem allt bendir til þess að það stefni í skort á flugumferðarstjórum.

Nýr flugturn verður tekin í notkun eftir nokkra mánuði á flugvellinum í Delhi en vandamálið er að ekki er víst að hægt verði að manna turninn almennilega þegar klippt verður á borðann og hann vígður formlega.

Indversk flugmálayfirvöld segja að hæpið sé að hægt verði að taka á móti áframhaldandi aukningu í flugi til og frá landinu þar sem ekki eru nægilega margir flugumferðarstjórar á Indlandi.

Indira Ghandi International flugvöllurinn í Delhi er stærsti flugvöllur Indlands en um hann fóru yfir 26,8 milljónir farþega árið 2015 og nú þegar eru ekki nægilega margir flugumferðarstjórar tiltækir m.a.v. fjölda þeirra flugvéla sem fer um flugvöllinn.

Mánaðarlaunin eru ekki ýkja há en lágmarkslaun flugumferðarstjóra á Indlandi eru um 29.000 krónur sem gæti verið ástæða þess að 1/3 af öllum flugumferðarstjórum á Indlandi eru á lausu og ekki starfandi eins og er.

Flugumferðarstjórar í flugturninum í Delhí



Mohan Ranganathan, fyrrum atvinnuflugmaður á Indlandi og flugöryggissérfræðingur á Indlandi, segir að flugumferðarstjórar séu útkeyrðir sökum vinnuálags sem er farið að skapa hættuástand og þá sérstaklega í ljósi þess að mikil aukning hefur orðið í farþegaflugi með tilkomu lágfargjaldafélaganna sem hafa stóraukið umsvif sín.

Mörg indversk lágfargjaldafélög hafa pantað allt að 100 þotur sem verða afhentar á næstu árum sem þýðir að flugumferð á eftir að aukast enn frekar sem kallar á fleiri flugumferðarstjóra.

Kapil Kaul, framkvæmdarstjóri hjá CAPA (Centre for Aviation) í Sydney segir að framtíðaráform flugumferðarstjórnarinnar sé alls ekki í samræmi við umsvif flugfélaganna og sé Indland að standa frammi fyrir stóru vandamáli vegna skorts á flugumferðarstjórum.

Þá eru ekki til nægilegar margar þjálfunarbúðir og kennslustöðvar fyrir flugumferðarstjórnun í Asíu sem gerir það að verkum að sum lönd missa út 1.000 flugumferðarstjóra á ári sem hefði þurft að þjálfa í hvert sinn árlega m.a.v. vöxtin í fluginu hverju sinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga