flugfréttir

MH370: Nýtt brak fundið í Mozambique

- Talið mögulegt að það sé af stélinu á malasísku farþegaþotunni

29. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 17:03

Talið er mögulegt að brakið sé af stéli malasísku farþegaþotunnar en það hefur þó ekki enn fengist staðfest

Nýtt brak hefur fundist sem mögulega gæti tilheyrt malasísku farþegaþotunni, flugi MH370, en um er að ræða málmbút sem fannst við strendur Mozambique í Afríku.

Það var Jean Viljoen, starfsmaður hjá ferðaskrifstofu í Suður-Ameríku, sem fann brakið sem er þríhyrningslaga, hvítt og rautt á lit og er um meter á stærð.

Getgátur eru um að brakið sé hluti af stéli vélarinnar en brakið inniheldur verksmiðjunúmer sem sent hefur verið til Boeing en brakið var afhent til lögreglu í Mozambique.

Nokkrir erlendir fréttamiðlar segja að ef málmbúturinn tilheyri malasísku farþegaþotunni þá gæti það gefið til kynna að þotan hafi sprungið áður en hún fór í sjóinn í Indlandshafi.

Brakið fannst við strendur Mozambique þann 23. ágúst

Nokkrir sérfræðingar í fluginu, sem hafa séð myndirnar af brakinu, segja að þar sem það lítur út fyrir að vera mjög illa farið gæti það bent til þess líklegra sé að vélin hafi sprungið í loftinu frekar en að flugmennirnir hafi náð að magalenda á sjó og vélin því næst sokkið í heilu lagi.

Ekki hefur enn verið ákveðið hvort að leitin af flugi MH370 muni halda áfram eftir áramót en sú leit, sem staðið hefur yfir núna á 120.000 ferkílómetra svæði í Suður-Indlandshafi, mun teka enda í desember.



















Fleiri myndir:







Einverjar getgátur eru á kreiki um að brakið gæti verið af stéli vélarinnar en það hefur ekki fengist staðfest







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga