flugfréttir

Þegar búið að ráða 35 nýja flugmenn hjá Icelandair fyrir næsta sumar

- Námskeið fyrir nýja flugstjóra hefjast í nóvember

22. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 17:12

„Svörtuborgir“ (TF-ISN) á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam þann 13. september

Icelandair hefur ráðið 35 nýja flugmenn til starfa sem munu koma til með að fljúga farþegaþotum félagsins á næstu sumarvertíð árið 2017 en á móti eru yfir 62 flugmenn sem munu láta af störfum hjá félaginu.

Samkvæmt fréttabréfi FÍA (Félags íslenskra atvinnuflugmanna) þá stendur ráðningarferlið yfir fram að áramótum en nú þegar hafa yfir 20 flugmenn verið þjálfaðir á Boeing 757 vélarnar og mun þjálfun ljúka eftir áramót en að því loknu munu þeir taka sæti flumanns í stjórnklefanum.

Ekki er enn vitað hversu margir flugmenn verða ráðnir til starfa í vetur en sl. vetur voru 62 flugmenn ráðnir til starfa sem er met hjá Icelandair.

Í nóvember og desember verða haldin flugstjórnámskeið en einnig er ekki vitað hversu margir nýir flugstjórar („captain in command“) munu bætast við fyrir sumarið 2017 en Icelandair hefur lagt töluverða vinnu í að meta hver þörfin er fyrir nýja flugmenn og flugliða hverju sinni sem fer eftir útreikningum á áhöfnum.

Mynd af 42 af af þeim 62ja manna flugmannaráðningu við útskrift eftir þjálfun vorið 2016 ásamt Þórhalli Hauki Reynissyni yfirflugstjóra Icelandair. Mynd: Sigurður Anton Ólafsson

Við næstu mánaðarmót er gert ráð fyrir að 62 flugmenn muni láta af störfum eftir sumarvertíðina en þótt um sé að ræða mikinn fjölda þá er þetta samt minni hópur en hefur látið af störfum sl. ár eftir sumarvertíð en árstíðarsveiflur verða mun minni í ár þar sem leiðarkerfi Icelandair hefur aldrei verið eins umsvifamikið og þennan vetur.

Metfjöldi flugliða starfaði hjá Icelandair í sumar

Þá voru um 1.200 flugliðar sem störfuðu við leiðarkerfi Icelandair í sumar og var mikil aðsókn í flugliðastarfið þar sem metfjöldi nýrra flugliða var tekinn inn í tengslum við fjölgun flugvéla en Icelandair tók í vor í notkun tvær Boeing 767 breiðþotur en næsta sumar mun breiðþotufjöldinn fjölga upp í fjórar Boeing 767 þotur.

Icelandair hefur í sumar flogið til 41 borga í farþegaflugi með Boeing 757 og 767 flotanum en eftir október munu 16 sumaráfangastaðir detta út úr leiðarkerfinu tímabundið yfir veturinn og ein borg bætast við sem mun fækka áfangastöðunum niður í tuttugu og sex.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga