flugfréttir
Stysta millilandaflug í heimi mun taka aðeins 8 mínútur
Það mun taka aðeins 8 mínútur að fljúga frá St. Gallen og Friedrichshafen
Flugfélag eitt í Austurríki segir að félagið mun á næstunni fljúga áætlunarflug sem mun án efa verða stysta millilandaflug í heimi.
Flugfélagið People´s Viennaline mun þann 2. nóvember byrja að fljúga frá St. Gallen í Sviss til Friedrichshafen í Þýskalandi en fjarlægðin
á milli flugvallanna er aðeins 22 kílómetrar sem samsvarar því að fljúga frá Reykjavíkurflugvelli upp á Sandskeið.
People´s Viennaline mun nota farþegaþotu af gerðinni Emrbear ERJ 145 til flugsins og verður flugtíminn aðeins 8 mínútur en flogið verður tíu sinnum í viku.
Kort af frarlægðinni á milli flugvallanna tveggja
Bærinn St. Gallen er við stöðuvatnið Bodense en Friedrichshafen liggur Þýskalands-megin við norðurenda vatnsins en þess má geta að keyra
milli þessara staða tekur 1 klukkustund og 15 mínútur.
Eitt sinn var flugleiðin milli Vínarborgar og Bratislava stysta millilandaflugleið heims en ekki er flogið lengur milli þeirra borga en fjarlægðin þar á milli
er 48 kílómetrar.
People´s Viennaline var stofnað árið 2010 með starfsemi í Sviss en félagið hefur höfuðstöðvar í Vín
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.