flugfréttir
„Hvernig getur flugumferð tvöfaldast á 15 ára fresti án stærri flugvéla?“
- Airbus bjartsýnt á að eftirspurn eftir A380 eigi eftir að aukast
Airbus A380 tilraunaþota
Airbus hefur vísar þeim sögusögnum á bug að eftirspurnin eftir risaþotunni Airbus A380 hafi farið dvínandi þrátt fyrir að dregið hafi verið úr framleiðsluhraða vélarinnar.
„Á 15 ára fresti hefur flugheimurinn tvöfaldað umsvif sín og á sama tíma höfum við
Heathrow-flugvöllinn í London sem er fullskipaður og það sama má segja
um Hong Kong. Hvernig getum við komið til móts við tvöfalt meiri flugumferð
á 15 ára fresti ef við notum ekki stærri flugvélar“, segir John Leahy, sölustjóri Airbus.
Þrátt fyrir þetta þá hefur verulega dregið úr nýjum pöntunum frá flugfélögunum
í nýjar Airbus A380 þotur og ætlar Airbus
að lækka framleiðsluhraðann niður í tólf þotur árið 2017 frá 27 þotum sem framleiddar
voru í fyrra.
Risaþota Lufthansa í flugtaki frá flugvellinum í San Francisco
og A380 þota Air France í forgrunni
Samt hefur ekki enn borið á því að eftirspurnin eftir Airbus A380 sé að aukast og hafa
flugfélög frekar verið að hætta við pantanir í síðustu vélarnar sem þau hafa átt
eftir að fá afhentar.
Air France sagði í mars á þessu ári að félagið þyrfti ekki að fá tvær seinustu A380
þoturnar og breytti pöntuninni yfir í þrjár Airbus A350-900 þess í stað.
Þá sagði Qantas í ágúst að félagið myndi ekki taka við síðustu átta risaþotunum
en flugfélagið ástralska hefur nú þegar fengið tólf A380 afhentar frá upphafi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.