flugfréttir

Er Monarch á barmi gjaldþrots?

- Farþegar lýsa yfir áhyggjum sínum á Twitter

26. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:00

Flugvélar breska flugfélagsins Monarch

Sögusagnir hafa verið á kreiki um helgina um að Monarch Airlines sé að fara leggja árar í bát vegna gjaldþrots en flugfélagið breska vísar þeim orðrómi á bug.

Fjölmargir farþegar hafa lýst yfir áhyggjum sínum varðandi bókanir og hafa sumir þeirra m.a. sent inn fyrirspurnir á samfélagsmiðla félagsins á borð við Twitter og spurt hvort von sé á því að félagið sé að verða gjaldþrota.

Orðrómurinn fór að dreifast út í gær eftir að í ljós kom að flugvélar frá United Airlines eiga á næstu dögum að fljúga nokkrar flugleiðir milli sömu borga og Monarch og á sama tíma sem hefur vakið upp grundsemdir meðal farþegar sem eiga bókað flug með félaginu og einnig þeim sem eiga bókað heim aftur.

Monrach hefur svarað sumum Twitter-notendum og sagt að engin röskun sé á fyrirhuguðu flugi og sé ekki hætta á því að farþegar komist ekki leiðar sinnar.

Airbus A320 þota Monarch á flugvellinum á Lanzarote

Monarch Airlines auglýsti sólarlandaferðir seinast í gær í breskum fjölmiðlum og var í gærkvöldi enn opið fyrir bókanir á vefsíðu félagsins.

„Hæ, þessar sögusagnir eiga ekki við rök að styðjast og vinsamlegast hunsið þær“, svarar Monarch Airlines einum Twitter-notanda sem á bókað flug með félaginu.

„Eruð þið að verða gjaldþrota í kvöld? - Ég vona ekki. Við eigum bókað flug með félaginu“, segir einn farþegi, Adam Farmiloe. - Monarch Airlines svarar: „Alls ekki. Adam. Við vonum að þú átt ánægjulegt flug“.

Þá hafa farþegar einnig hvatt Monarch til þess að koma með opinera yfirlýsingu eða fréttatilkynningu þar sem fólk sé farið að örvænta þar sem mikið sé rætt á samfélagsmiðlum um að félagið sé að verða gjaldþrota.

„Ef þessar sögusagnir eru ekki réttar hvers vegna er þá United Airlines að fljúga á næstunni sömu leiðir og þið og á sama tíma?“, spyr einn notandi á Twitter.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga