flugfréttir

Rússar ætla að smíða „arftaka“ Antonov An-124

26. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:28

Antonov An-124 í lendingu á Keflavíkurflugvelli í desember í fyrra

Rússar eru sagðir vera að íhuga að hefja framleiðslu á stórri fraktflugvél sem væri einskonar „arftaki“ hinnar úkraínsku Antonov An-124 vélar þar sem slest hefur upp á samstarf þeirra við úkraínska flugvélarisans, Antonov.

Framleiðsla vélarinnar gæti hafist jafnvel innan 2 ára en Antonov An-124 hefur verið tíður gestur á Keflavíkurflugvelli þar sem vélar Volga-Dnepr hafa oft haft viðkomu hér á landi á leið sinni vestur um haf.

Andrei Boginsky, viðskipta- og iðnaðaráðherra Rússlands, segir að enn sé ekki búið að ákveða hvenær til stendur að hrinda verkefninu í framkvæmd en hann áætlar en boltinn sé núna inni á borði hjá varnarmálaráðherranum þar sem þeir munu verða viðskiptavinurinn sem mun kaupa vélarnar.

Antonov An-124-100

Boginsky segir að Design Bureau muni koma til með að hanna vélina og sé þróun vélarinnar á algjöru frumstigi en eins og staðan er í dag þá eiga Rússar erfitt með að viðhalda flughæfnisvottuninni fyrir Antonov An-124-100.

Í september í fyrra slitnaði upp úr samstarfi Rússa og Úkraínumanna hjá Antonov og hefur framleiðandinn síðan þá ekki lengur boðið upp á viðhaldsþjónustu fyrir Antonov An-124.

55 eintök af Antonov An-124 hafa verið framleidd frá því vélin flaug fyrst árið 1982 en Volga-Dnepr og flugherir víðsvegar um heim eru helstu viðskiptavinir sem hafa vélina í flota sínum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga