flugfréttir

Nepal Airlines mun skipta Boeing 757 út fyrir Airbus A330-200

27. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:33

Boeing 747-200 vél Nepal Airlines

Nepal Airlines ætlar að skipta báðum Boeing 757 vélum félagsins út fyrir tvær Airbus A330 þotur.

Nepal Airlines hefur fengið grænt ljós frá stjórn flugfélagsins til þess að festa kaup á tveimur A330-200 vélum en fjármálaráðuneyti Nepals mun verða ábyrgt fyrir láni sem tekið verður til að fjármagna kaupin.

Kröfur eru gerðar til þess að Airbus A330-200 vélarnar tvær verði ekki eldri en 2 ára og verður opnað fyrir útboð fyrir þau flugfélög og fyrirtæki sem hafa áhuga á að selja félaginu slíkar vélar en stefnt er að því að fá aðra vélina í flotann í september árið 2017 og þá seinni í mars 2018.

Airbus A320, Boeing 757 og Twin Otter vél Nepal Airlines á flugvellinum í Kathmandu

Kaupin eru hluti af endurnýjun flota Nepal Airlines en stefna félagsins er að vera alfarið með þotur frá Airbus en félagið hefur í dag blandaðan flota af vélum frá Airbus, Boeing, de Havilland auk minni flugvéla sem framleiddar voru í Kína.

Nepal Airlines tilkynnti í júlí í sumar að til stæði að selja báðar Boeing 757 vélarnar en önnur þeirra er af gerðinni Boeing 757-200 og hin er 757-200M sem er með sameiginlegu farþega- og fraktrými með stórri frakthurð að framan á aðalþilfari.

Báðar Boeing 757 vélarnar munu gangast undir yfirhalningu í Singapore áður en þeir verða settar á sölu en vélarnar hefur Nepal Airlines notað í millilandaflugi frá Kathmandu til Bangalore og Delhi á Indlandi og til Doha í Qatar og til Kuala Lumpur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga