flugfréttir
Rangir útreikningar fyrir lendingu olli því að Boeing 737 fór út af braut
Flugvélin fór út af braut í lendingu í Yogyakarta í Indónesíu í nóvember árið 2015
Rannsóknarnefnd flugslysa í Indónesíu hefur komist að því að rangur útreikningur hjá flugmönnum hafi ollið því að Boeing 737-900ER farþegaþota frá Batik Air fór út af flugbraut í lendingu á flugvellinum í Yogyakarta í Indónesíu í nóvember árið 2015.
Vélin var á leið frá Jakarta til Yogyakarta þann 6. nóvember í fyrra með 168 manns innanborðs að
meðtaldri áhöfn en í aðfluginu fengu flugmenn nýjar veðurupplýsingar sem varð til þess
að þeir breyttu stillingu á flöpsum í 40 gráður og notuðu „autobrake 3“.
Eftir að þeir urðu varir við skúraflókaský (Cumulonimbus cappilatus) breyttu þeir stillingu
á flöppsum yfir á 30 gráður en stilltu „autobrakes“ í hæstu stillingu eftir að þeir fengu að heyra
að flugbrautin væri blaut.
Boeing 737-900ER vélin lenti á brautinni þegar 427 metrar voru búnir af vegalengdinni frá brautarbyrjun
og var settur mestur mögulegur knývendur á hreyflanna en þegar vélin nálgaðist enda brautarinnar
var „autobrake“ yfirtekið af handvirkri bremsu sem var notuð í hámarki.
Þetta varð til þess að vélin fór út af braut og staðnæmdist 80 metrum frá brautarendanum en nefhjól
vélarinnar gaf sig og féll nefhlutinn ofan í jörðina.
Í lokaskýrslu sem indónesísk flugmálayfirvöld birtu í dag kemur fram að flugmenn vélarinnar
hafi ekki endurútreiknað lendingarvegalengd eftir að þeir breyttu stillingum á flöpsum sem varð til
þess að vélin fór út af brautinni.
Fram kemur að öðru leyti hefði vélin alveg átt að geta hemlað m.a.v. aðstæður ef útreikningarnir hefðu verið réttir.
Í kjölfar atviksins gaf Batik Air út fyrirmæli til flugmanna með leiðbeiningum um lendingar
á blautum flugbrautum til að fyrirbyggja að atvikið myndi endurtaka sig og þá sérstaklega
á flugvellinum í Yogyakarta.
Þá hafa indónesísk flugmálayfirvöld hvatt flugvöllinn í Yogyakarta til þess að mæla ástand brautanna
oftar í votviðri og æfa betur björgunar- og neyðarviðbrögð við slysum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.