flugfréttir

Framhaldsskóli setur upp flugherma fyrir nemendur með áhuga á flugi

28. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:01

Allir nemendur skólans mega hafa aðgang að flughermunum sem komið hefur verið upp

Framhaldsskóli einn í Bandaríkjunum hefur ákveðið að leyfa nemendum að taka sér smá pásu frá kennslustund með því að bjóða þeim upp á að fljúga í flughermi sem settur hefur verið upp í nokkrum tölvum í einni kennslustofunni auk alvöru kennsluflughermis.

Það er skólinn North High School í Bakersfield í Kaliforníu sem hefur tekið upp á þessari nýjung og er því ekki ólíklegt að einhverjir nemendur eigi eftir að fá flugbakteríuna og hella sér í flugnámið eftir að skólagöngu lýkur.

„Mig hefur alltaf langað að verða flugmaður og það gæti verið gaman að snúa sér að þessu fagi“, segir Blake Seay, einn nemandi í skólanum sem hefur nýtt sér flughermaaðstöðuna mjög vel.

Það voru skólayfirvöld í Bakersfield sem hvöttu North High School til þess að taka upp á einhverri nýjung sem myndi hvetja nemendur til þess að fá hagnýta reynslu á einhverju sviði.

Skólinn fékk til liðs við sig flugmanninn Magali Lewis sem var skólanum innan handar við uppsetningu á bæði tölvum með flughermi auk þess sem skólinn fékk einn kennsluflughermi af gerðinni Redbird.

Lewis er einnig flugkennari hjá Excell Aviation í Bakersfield og hefur hún aðstoðað nemendur við að taka sín fyrstu skref í fluginu en nemendur munu á endanum fá að fljúga sitt fyrsta flug á kennsluflugvél eftir nokkra mánuði.

Skólastjórinn segir að flughermarnir séu komnir til að vera og sé um langtímaverkefni að ræða.

Fleiri myndir:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga