flugfréttir
Mitsubishi Regional Jet þotan loksins á leið til Bandaríkjanna
- Lenti í Anchorage í nótt og er væntanleg í dag til Washington-fylkis
Mitsubishi Regional Jet vélin (MRJ) á flugi
Fyrsta Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunaþotan er nú á leið sinni til Bandaríkjanna í flugprófanir en þetta er þriðja tilraun Mitsibishi Aircraft til þess að fljúga vélinni „Kyrrahafsleiðina“ til Ameríku í flugprófanir.
Tvisvar áður var reynt að fljúga vélinni til Bandaríkjanna en í báðum tilvikunum kom upp bilun í loftræstikerfi vélarinnar
en síðar kom í ljós að aðeins var um að ræða bilun í skynjurum.
Vélin, sem er af gerðinni MRJ90, fór í loftið frá Nagoya-flugvelli, skammt suður af Tókýó sl. sunnudag og var henni
flogið til Hokkaido sem er nyrsta eyja Japans.
Því næst var vélinni flogið til Petropavlovsk á Kamchatsky-skaganum í Rússlandi en þaðan flaug hún til Anchorage þar sem vélin lenti rétt klukkan 4 í nótt að íslenskum tíma en áætlað er að vélin lendi seinnipartinn í dag á Grant County International flugvellinum í Washington-fylki í
Moses Lake þar sem flugprófanir munu fara fram.
Alls mun Mitsubishi Aircraft senda fjórar tilraunavélar til Moses Lake í Bandaríkjunum sem munu gangast undir viðamiklar flugprófanir
í nokkra mánuði en yfir 200 starfsmenn munu koma að prófununum.
Um 100 verkfræðingar og starfsmenn munu koma að verkefninu frá Seattle og yfir 50 frá Mitsubishi Aircraft í Japan sem munu
fara yfir niðurstöður úr tilraununum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.