flugfréttir

Icelandair mun hefja flug til Tampa

- Munu fljúga tvisvar í viku frá og með september 2017

5. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:05

Icelandair mun hefja flug til Tampa í september árið 2017

Icelandair mun hefja beint áætlunarflug til Tampa í Flórída sem mun verða nýr áfangastaður í leiðarkerfi félagsins á næsta ári.

Flugið til Tampa hefst þann 7. september 2017 og verður flogið tvisvar í viku og verður Tampa 41. áfangastaður félagsins í leiðarkerfi félagsins og sá sextándi í Norður-Ameríku en sautjándi flugvöllurinn vestanhafs þar sem Icelandair flýgur til tveggja flugvalla í New York.

Tampa er 3. stærsta borgin í „sólskinsfylkinu“ Flórída á eftir Jacksonville, sem er sú stærsta og Miami, sem er sú næst fjölmennasta.

Tampa er staðsett „hinumegin“ á Flórída við strönd Mexíkóflóa og eru íbúafjöldi borgarinnar um 350.000 manns en á stórborgarsvæðinu ásamt St. Petersburg og Clearwater búa um 2,8 milljónir en um 4 milljónir á öllu Tampa Bay svæðinu sem inniheldur Sarasota og Bradenton.

„Við teljum að íbúar á Tampa-svæðinu eigi eftir að njóta þess sem við höfum upp á að bjóða sem er flug milli Bandaríkjanna og Kanada til Evrópu“, segir Guðjón Arngrímsson, talsmaður Icelandair í viðtali við Tampa Bay Times en Tampa hefur verið til skoðunar hjá Icelandair um nokkurt skeið.

Flugtíminn til Tampa verður um sjö klukkustundir eða álíka langur og flugtíminn til Orlando en aðeins eru 130 kílómetrar sem skilja þessa tvo flugvelli að.

Tampa er mjög vinsæl ferðamannaborg þar sem margt er um að vera fyrir alla fjölskylduna en t.a.m. er stutt í hinn vinsæla skemmtigarð Busch Gardens, Florida Aquarium, Lowry Park dýragarðinn, Adventure Island, Ybor City og þá eru fjölmörg áhugaverð söfn þar að finna á borð við Museum of Science & Industry.

Tampa er 3. stærsta borg Flórída

Flugvöllurinn í Tampa ber merkinguna TPA en um völlinn fara 22 flugfélög sem fljúga til áttatíu áfangastaða í Norður-Ameríku, Mið-Ameríku, Karíbbahafsins og til Evrópu en völlurinn hefur oft ratað á Top 10 listann yfir bestu flugvellina í Bandaríkjunum.

Stærstu flugfélögin sem fljúga um Tampa-flugvöll eru Southwest Airlines, Spirit Airlines, American Airlines og Delta Air Lines en þau flugfélög sem fljúga til Tampa frá Evrópu eru British Airways, Edelweiss Air og Lufthansa en Icelandair verður fjórða evrópska flugfélagið sem mun fljúga þangað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga