flugfréttir
Bombardier mun fækka störfum um 7.500 til ársins 2018
CSeries CS300 þota Bombardier
Flugvélaframleiðandinn Bombardier ætlar að skera niður um 7.500 störf á næstu tveimur árum sem er liður í að hagræða rekstri fyrirtækisins.
Með því að fækka um 7.500 starfsmenn mun Bombardier ná að lækka rekstrarkostnað sinn um 34 milljarða til ársins 2018
en flugvélaframleiðandinn er einnig að skera niður á öðrum sviðum og þar á meðal með því að endurskipuleggja stjórn
fyrirtækisins.
Uppsagnir 7.500 starfsmanna samsvarar 10% af öllu vinnuafli Bombardier en hjá framleiðandanum starfa
alls 65 þúsund starfsmenn.
Bombardier tilkynnti um uppsagnirnar í dag en framleiðandinn segir að um nauðsynlegar aðgerðir séu að ræða til að viðhalda
samkeppnishæfni Bombardier til lengri tíma á sviði flugvélaframleiðslu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.