flugfréttir
Kuwait Airways kynnir nýtt útlit
- Fyrsta Boeing 777-300ER þota félagsins verður afhent í nóvember
Fyrsta Boeing 777-300ER þota Kuwait Airways í nýjum litum
Kuwait Airways kynnti í dag nýtt merki og nýtt útlit fyrir flugflota félagsins en fyrsta þotan í nýja litabúningnum var í gær ýtt út úr málningarsal Boeing í Everett.
Fyrsta þotan í nýjum litum Kuwait Airways er Boeing 777-300ER sem er einnig fyrsta vél þeirrar tegundar sem flugfélagið
mun fá af þeim 10 sem pantaðar voru en Kuwait Airways hefur hingað til haft 777-200ER týpuna í flota sínum.
Rasha Al Roumi, framkvæmdarstjóri Kuwait Airways, og fleiri stjórnarmeðlimir félagsins hafa um helgina skoðað verksmiðjur
Boeing í Everett í tilefni að afhendingu á fyrstu Boeing 777-300ER vélinni í nýju litunum en hópurinn fékk einnig að skoða
næstu 777-300ER þotu félagsins sem er nú í samsetningu.
Kuwait Airways mun fá fyrstu Boeing 777-300ER vélina, sem ber skráninguna 9K-AOC, afhenta í nóvember en vélin
er stærsta tveggja hreyfla flugvél heims og vinsælasta tegundin af Boeing 777 vélunum en frá upphafi hafa
verið pöntuð um 800 eintök af 777-300ER.
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu:
Svona hafa flugvélar Kuwait Airways litið út seinustu áratugi
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.