flugfréttir

Dubai dregur úr aðskilnaði minni og stærri flugvéla í aðflugi

- Mun draga úr seinkunum um 40 prósent á háannatíma

24. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:07

Frá flugvellinum í Dubai

Flugvöllurinn í Dubai hefur nú séð við seinkunum á komuflugi með nýjum flugumferðarstjórnunarbúnaði sem búið er að taka í notkun sem mun gera flugvellinum kleift að taka við fleiri lendingum á hverja klukkustund en hann hefur gert hingað til.

Frá því í mars í vor hafa farið fram tilraunir með nýrri flugumferðaraðferð er nefnist „approach peak offload“ (APO) sem reiknar út með meiri nákvæmni lágmarksfjarlægð sem þarf til að skilja að minni flugvélar á borð við Boeing 737 og stærri breiðþotur og risaþotur á borð við Airbus A380.

Minni flugvélar sem lenda á eftir stærri þotum þurfa að vera í lengri fjarlægð þar sem stórar flugvélar skilja eftir sig mikla flugröst sem er ólga í loftstreymi sem kemur m.a. frá vængendahvirflum.

Airbus A330 og Airbus A380 risaþota Emirates

Flugvallaryfirvöld í Dubai gera ráð fyrir að hægt verði að draga úr seinkunum á komuflugi um 40 prósent með því að minnka aðskilnað smærri véla og stærri flugvéla sem eru að koma inn til lendingar og má því hraða fyrir því ferli er kemur að lendingum og akstri frá flugbraut að flugstöð.

Einnig gera flugmálayfirvöld í Dubai ráð fyrir að hægt verða að draga úr losun kolefna um allt að 447 tonn á hverjum mánuði með aðferðinni þar sem flugvélar munu með þessu eyða minni tíma í því að bíða eftir lendingarleyfi.

Seinkanir á komuflugi hafa valdið því fjöldi flugvéla þurfa að vera í biðflugi og hringsóla í nágrenni flugvallarins í Dubai eins og tíðkast oft við stóra flugvelli víðast hvar í heiminum en með þessu geta flugfélög verið oftar á réttum tíma sem mun bæta flugáætlun þeirra.

Margar minni flugvélar hafa þurft að hafa langa vegalengd framundan ef Airbus A380 risaþota hefur verið á undan þeim að lenda en Emirates hefur í dag 84 risaþotur í flotanum sem fljúga til og frá Dubai en þeim mun fjölga upp í 117 risaþotur fyrir lok ársins 2018.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga