flugfréttir

Tveggja hreyfla Fairchild flugvél fórst eftir flugtak á Möltu

- Fimm manns um borð - Enginn komst lífs af

24. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:55

Vélin fórst skömmu eftir að hún hóf sig á loft frá flugvellinum í Luqa í morgun

Fimm manns létu lífið í morgun er tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Fairchild Swearingen SA226-AT Merlin IV fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum á Möltu.

Vélin var í eftirlitsflugi með starfsmenn á vegum frönsku tollgæslunnar innanborðs en vélin var á leið til Líbýu þegar slysið átti sér stað en tilgangur ferðarinnar var að fylgjast með ólöglegum fluttningi á flóttamönnum og fíkniefnum yfir Miðjarðarhafið.

Ekki er enn vitað hvað olli slysinu en einn ökumaður, sem var á akstri nálægt flugvellinum í Luqa, náði myndskeiðum á mælaborðsmyndavél.

Vélin sem fórst bar skráninguna N577MX

Franska varnarmálaráðuneytið segir að segir að þrír starfsmenn ráðuneytisins hafi látið lífið auk tveggja flugmanna en enginn komst lífs af.

Slysið átti sér stað klukkan 05:20 í nótt að íslenskum tíma og var flugvellinum í Luqa á Möltu lokað um tíma fyrir flugumferð en opnað hefur nú verið aftur fyrir lendingar og brottfarir.

Vélin sem fórst bar skráninguna N577MX en hún var smíðuð árið 1983 og var í eigu CAE Aviation í Lúxemborg.

Rannsókn á slysinu er nú þegar hafin og vinna flugmálayfirvöld á Möltu að rannsókn þess í samvinnu við önnur stjórnvöld.

Vélin fórst eftir flugtak í morgun klukkan 05:20 að íslenskum tíma:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga