flugfréttir
Kína mun taka fram úr Bandaríkjunum árið 2024 í farþegafjölda
- Indland mun einnig ná Bretlandi á næstu árum
Talið er að 1,3 milljarður muni fara um kínverska flugvelli árið 2035
Kína mun innan átta ára taka fram úr Bandaríkjunum hvað varðar fjölda þeirra flugfarþega sem fara um kínverska flugvelli bæði í innanlandsflugi og millilandaflugi.
Samkvæmt nýjustu spá Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA) verður Kína orðin stærsta flugumferðarsvæði heims árið 2024
þar sem talið er að fjöldi flugfarþega í landinu eigi eftir að tvöfaldast á næstu átta árum.
Í fyrra flugu 487 milljónir farþega um kínverska flugvelli en ef spár IATA ná fram að ganga verður sá fjöldi komin upp í 927 milljónir
árið 2025 og upp í 1,3 milljarð farþega á ári árið 2035.
Frá Dallas-Fort Worth flugvellinum í Texas
Á sama tíma er gert ráð fyrir að þeir farþegar sem fljúga um bandaríska flugvelli verði 904 milljónir árið 2025 en í fyrra
voru 657 milljónir farþegar sem flugu til og frá Bandaríkjunum og í millilandaflugi.
Þá er talið að flugmarkaðurinn á Indlandi eigi eftir að taka fram úr Bretlandi fyrir árið 2025 en ekkert land hefur sótt í sig veðrið
eins ört og Indland þegar kemur að fjölgun flugfarþega á milli ára.
„Fólk vill fljúga. Flugbrautir, flugstöðvar, öryggisgæsla, farangursflokunarkerfi og flugumferðarsvæði er allt meðal þess sem þarf
að huga að og stækka á helstu flugvöllum til að koma til móts við þessa fjölgun farþega“, segir Alexander de Juniac hjá IATA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.