flugfréttir

Heathrow færi leyfi fyrir þriðju flugbrautinni

- Ríkisstjórn Bretlands gefur grænt ljós til að stækka Heathrow

25. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:53

Frá Heathrow-flugvellinum í London

Leyfi hefur verið gefið fyrir þriðju flugbrautinni á Heathrow-flugvelli en ríkisstjórn Bretlands tilkynnti ákvörðun sína í flugvallarmáli Breta og var ákvörðunin tilkynnt formlega í morgun laust fyrir hádegi.

Chris Grayling, samgönguráðherra Bretlands, sagði akvörðunina vera „mjög örlagaríka“ og marka stórt skref í samgöngumálum Breta.

„Nákvæm staðsetningu fyrir þriðju flugbrautinni verður tekin fyrir á þinginu eftir áramót og verður þá gerð drög að stefnuyfirlýsingu vegna fyrirhugaðra framkvæmda en þessi ákvörðun undirstrikar skuldbindingu okkar um að viðhalda því að Bretland verði áfram samkeppnishæft í heimi viðskipta og að Heathrow verði einnig áfram leiðandi flugvöllur fyrir ferðamannaiðnaðinn“, segir í yfirlýsingu frá samgönguráðuneyti Bretlands.

Ríkisstjórn Bretlands hefur gefið leyfi fyrir þriðju flugbrautinni

Talið er að þriðja flugbrautin á Heathrow-flugvelli og framkvæmdirnar við brautina eigi eftir að skapa 77.000 ný störf á næstu 14 árum.

„Ég er stoltur yfir því að eftir margra ára viðræður og seinkun á afgreiðslu málsins sé loksins búið að taka ákvörðun og tryggja stöðu Bretlands í flugmálum sem mun skapa stór tækifæri á sviði atvinnu og viðskipta næstu áratugina“, segir Grayling.

Mjög skiptar skoðanir eru um málið en Boris Johnson, fyrrverandi borgarstjóri Lundúna, sagði þessa ákvörðun ekki af hinu góða og þingmenn fyrir Uxbridge og South Ruislip telja þrátt fyrir leyfisveitinguna samt vera mjög langt í land þar til að framkvæmdir munu hefjast.

Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna, er einnig á móti þriðju flugbrautinni og telur hann það vera ranga ákvörðun að ráðast í stækkun flugvallarins með nýrri flugbraut og í sama streng tekur John Sauven, forstjóri Greenpeace í Bretlandi, sem telur að framkvæmdirnar á þriðju flugbrautinni eigi eftir að valda mikilli mengun fyrir lífríki og þar að auki vera „sóun á tíma, fé og valda röskun á lífsgæðum fólks“.

Stór hópur ýmissa samtaka, félaga, fyrirtækja og fjárfesta fagna því að leyfi sé komið fyrir þriðju flugbrautinni þar sem það mun efla efnahag Breta og skapa ný atvinnutækifæri.

Nokkrir þingmenn á breska þinginu hafa hótað því að segja af sér og þar á meðal Zac Goldsmith, þingmaður fyrir Richmond Park, sem hefur tilkynnt að hann muni segja af sér þingstörfum ef stækkun Heathrow-flugvallarins verður samþykkt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga