flugfréttir

Icelandair gengur í samtökin Airlines for Europe (A4E)

26. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 19:48

Icelandair er núna meðlimur í samtökunum A4E (Airlines for Europe)

Icelandair og A4E (Airlines for Europe) tilkynntu í dag að Icelandair er þrettánda flugfélagið til þess að ganga í hin nýstofnuðu en um leið stærstu samtök evrópskra flugfélaga.

Samtökin voru stofnuð í janúar á þessu ári en þau hafa höfuðstöðvar í Brussel og hafa að markmiði að vinna að hagsmunum flugfélaga á evrópskum vettvangi.

Flugfélögin sem nú þegar hafa gengið til liðs við A4E eru Aegean, airBaltic, Air France KLM, easyJet, Finnair, Icelandair, International Airlines Group (IAG), Jet2.com, Lufthansa Group, Norwegian, Ryanair, TAP Portugal og Volotea.

Með þessum flugfélögum fljúga um 550 milljónir farþega árlega í um 2.700 flugvélum sem samsvarar um 70% farþegaflugi álfunnar en heildarvelta þessara flugfélaga er yfir 100 milljarðar evra á ári.

“Við hlökkum til að vinna með A4E að helstu hagsmunamálum evrópskra flugfélaga og evrópskra flugfarþega svo sem að draga úr kostnaði við evrópska flugvelli. Helstu stefnumál A4E hafa áhrif á daglegan rekstur okkar hjá Icelandair og við viljum að rödd okkar heyrist í Evrópu”, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

“A4E býður nýja þátttakendur velkomna til starfa og þar sem helstu stefnumál okkar þurfa meiri athygli í Brussel og einstökum löndum Evrópu, sjá sífellt fleiri forsvarsmenn flugfélaga ástæðu til þess að sameinast í einum sterkum samtökum í Brussel. Flugfélög Evrópu bjóða íbúum og fyrirtækjum álfunnar upp á frábæra ferðamöguleika og starfsemi þeirra stuðlar að hagvexti og fjölgun starfa”, segir Thomas Reyneart, forstjóri A4E. Nánari upplýsingar um samtökin eru á a4e.eu







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga