flugfréttir

Icelandair valið flugfélag ársins af CAPA

28. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:05

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair tekur við viðurkenningunni í Amsterdam í gærkvöldi.

Icelandair var í gærkvöldi valið flugfélag ársins í flokki smærri flugfélaga af CAPA (Center for Aviation) sem er alþjóðleg upplýsingaveita um flugmál.

Það var Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdarstjóri Icelandair, sem tók við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn sem fram fór í Amsterdam.

Verðlaunin sem Icelandair hlaut eru veitt því flugfélagi í heiminum sem þykir skara fram úr meðal þeirra sem flytja færri en 10 milljónir farþega árlega en dómnefnd alþjóðlegra sérfræðinga valdi Icelandair vegna sterkrar frammistöðu í harðri alþjóðlegri samkeppni þrátt fyrir að heimamarkaður félagsins sé lítill.

Verðlaunin sem Icelandair hlaut eru veitt því flugfélagi í heiminum sem þykir skara fram úr meðal þeirra sem flytja færri en 10 milljónir farþega

Félagið hafi vaxið hratt og skilað hvað bestum rekstrarárangri meðal hefðbundinna flugfélaga en Peter Harbison, forstjóri CAPA, sagði m.a. frumlegt og framsækið leiðakerfi með tengingum milli Evrópu og Norður-Ameríku hafa drifið áfram bæði vöxt félagsins og ferðaþjónustunnar á Íslandi og að bæði vöxturinn og afkoman væri sannarlega óvenjuleg meðal Evrópskra flugfélaga.

CAPA – Center for Aviation er helsta upplýsingaveita og rannsóknaraðili á alþjóðaflugmarkaðinum og sérfræðingar fyrirtækisins veita stjórnvöldum, flugfélögum og flugvöllum um allan heim ráðgjöf og tölfræðiupplýsingar.

Hátíðin í gær er fjórtánda Aviation Awards for Excellence hátíðin sem haldin er þar sem bæði flugvellir og flugfélög eru verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur á sínum sviðum.

London City flugvöllurinn og Vancouver flugvöllur fengu verðlaun í flokki flugvalla og þá hlaut Tony Fernandes, framkvæmdarstjóri Air Asia, verðlaun sem besti framkvæmdarstjóri flugfélags.

Qatar Airways var valið CAPA flugfélag ársins í aðalflokki, Wizz Air var valið lágfargjaldarfélag ársins og þá hlaut Iberia verðlaun fyrir framúrskarandi viðsnúning á rekstri félagsins sem er komin á réttan kjöl eftir erfið ár.

Fjórtánda Aviation Awards for Excellence hátíðin fór fram í gærkvöldi í Amsterdam







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga