flugfréttir
Croatia Airlines bannað að selja afgreiðslupláss á Heathrow
Airbus A319 þota Croatia Airlines á Heathrow-flugvellinum í London
Croatia Airlines hefur verið bannað að selja eða ráðstafa afgreiðsluplássum sínum á Heathrow-flugvellinum í London en flugfélagið króatíska hefur 9 pláss á viku á Heathrow.
Croatia Airlines hafði lýst því yfir í seinustu viku að til stæði að selja nokkur afgreiðslupláss í þeim tilgangi að fá aukið
fé inn í reksturinn til að greiða niður skuldir félagsins.
Samgönguráðherra Króatíu, Oleg Butkovic, hefur lýst því yfir að króatíska ríkið hafi komið í veg fyrir fyrirhugaða sölu
á plássunum á fundi með framkvæmdarstjóra félagsins í seinustu viku.
Á fundinum var rætt um að ekki væri hægt að gefa leyfi fyrir sölunni þar sem ekki er vitað hvaða langtímaáhrif það muni koma
til með að hafa á rekstur félagsins ef afgreiðsluplássin verða seld.
Þá vill ríkisstjórn Króatíu fá að vita hvað valdi því að félagið sjái
ástæðu til þess að selja plássin á sama tíma og félagið er á leiðinni með að skila inn hagnaði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.