flugfréttir
Mýflug flaug í morgun sexhundruðasta sjúkraflugið á þessu ári
- 257 forgangsflug þar sem tíminn skiptir öllu máli
TF-MYA flaug í morgun sexhundruðasta sjúkraflug Mýflugs á þessu ári
Rétt fyrir klukkan 11 í morgun fór Mýflug í sitt sexhundruðasta sjúkraflug á þessu ári en þetta kemur fram á vefsíðu Slökkviliðs Akureyrar en sjúkraflutningamaður á þeirra vegum var um borð í vélinni.
Alls hefur Mýflug flogið með 634 sjúklinga milli landshluta í þessum sex hundruð flugferðum en 369 sjúklingar hafa verið fluttir á Landspítalann í Reykjavík það sem af er árinu.
Í 257 skipti hefur verið um forgangsflutninga til Reykjavíkur að ræða þar sem tíminn skiptir öllu máli en fram kemur á vefsíðu slökkviliðsins að þessir miklu og síauknu flutningar á veiku fólki í kappi við tímann renna því stoðum undir mikilvægi þess að
miðstöð innanlandsflugs í Reykjavík sé í námunda við Landsspítalann.
Hjá Slökkviliði Akureyrar vinna 25 slökkviliðsmenn í fullu starfi og þar af eru 15 sem fara í sjúkraflug. Það fer alltaf að lágmarki einn sjúkraflutningamaður með í sjúkraflug og stundum tveir þegar flytja þarf tvo sjúklinga í sama fluginu. Í alvarlegustu tilfellunum fer læknir frá Sjúkrahúsi Akureyrar með í flug.
Hvert sjúkraflug tekur að meðaltali 3,23 klst og hafa því slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hjá SA verið um 2000 klst í sjúkraflugum á árinu 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.