flugfréttir

Nýja Cyprus Airways undirbýr sig fyrir flugrekstur

- Fengu fyrstu þotuna afhenta í gær sem er af gerðinni Airbus A319

2. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:38

Fyrsta Airbus A319 þota hins nýja Cyprus Airways

Nýja Cyprus Airways mun á næstunni hefja áætlunarflug en flugfélagið Charlie Airlines fékk í sumar leyfi til þess að koma nafni kýpveska flugfélagsins aftur á loft með stofnun nýs flugfélags.

Cyrpus Airways varð gjaldþrota og hætti flugrekstri þann 30. janúar árið 2015 eftir 67 ára starfsemi en félagið hafði reynt að finna fjárfesta til að koma félaginu til bjargar en án árangurs.

Ríkisstjórn Kýpur veitti Charlie Airlines í júlí á þessu ári leyfi til þess að nota nafn félagsins og keypti félagið afnot af merki og ímynd Cyprus Airways fyrir 276 milljónir króna en ríkisstjórn Kýpur mun samt eiga nafnið og merkið sjálft.

Í gær fékk félagið sína fyrstu þotu afhenta fyrir fyrirhugaðan flugrekstur sem er af gerðinni Airbus A319 en félagið vinnur nú að því að smíða leiðarkerfið og flugáætlun sína og er von á að Charlie Airlines fái flugrekstrarleyfi fyrir lok ársins.

Airbus A319 þotan kemur úr flota Royal Brunei Airlines en vélin er í eigu CIT Aerospace. Charlie Airlines er 40% í eigu S7 Holdings en kýpversk yfirvöld eiga sextíu prósent í félaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga