flugfréttir
Jet Time í krísu - Munu segja upp þriðjungs starfsfólks
Boeing 737-300 þota Jet Time
Danska flugfélagið Jet Time hefur neyðst til þess að draga verulega saman seglin í rekstri sínum en félagið hefur m.a. sagt upp 35 prósent af starfsmönnum.
Jet Time mun m.a. hætta ACMI starfsemi sinni fyrir Scandinavian Airlines (SAS) og draga sig úr fraktflugi og þá verður 278
starfsmönnum félagsins sagt upp störfum á næstu níu mánuðum sem samsvarar 35% mannauðs fyrirtækisins.
„Að kveðja svo stóran hóp starfsmanna er stórt og erfitt skref en það er samt sem áður nauðsynlegt ef Jet Time ætlar ætlar
að þrauka áfram til lengri tíma litið“, segir Jørgen Holme, framkvæmdarstjóri félagsins.
Flugfloti Jet Time telur 23 flugvélar en flotinn samastendur af ATR skrúfuvélum, Boeing 737-300 og 737-700 þotum
og þá hefur félagið fimm Boeing 737-400F frakþotur.
Flugrekstur fyrir SAS og fraktflug gerir reksturinn flóknari
Jet Time og SAS hafa bæði fallist á að taka úr flotanum átta ATR 72-600 skrúfuvélar sem hafa flogið fyrir SAS en sú síðasta
mun fara úr flotanum í september á næsta ári.
Verulega verður dregið úr fraktflugi með Boeing 737-400F þotunum en ekki er enn ákveðið hversu hratt fraktdeildinni verður lokað.
Jørgen Holme segir að sterka hlið Jet Time hafi alltaf verið leiguflug og verði félagið því að einblína á þá starfsemi til að ná að halda velli en Holme
segir að ATR skrúfuvélarnar og fraktflugið hafi gert reksturinn mjög flókinn.
Jet Time var stofnað árið 2006 og á seinustu 10 árum hefur félagið orðið stærsta flugfélag Danmerkur með árlega veltu
upp á 27 milljarða króna og 700 starfsmenn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.