flugfréttir
Delta fær sína fyrstu A321 þotu frá Mobile í Alabama
Fyrsta Airbus A321 þotan fyrir Delta Air Lines sem afhent er frá verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama
Delta Air Lines hefur fengið afhenta sína fyrstu Airbus A321 þotu sem framleidd er í verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum.
8 mánuðir eru frá því að Airbus afhenti fyrstu þotuna sem smíðuð er í Alabama en það var jetBlue sem fékk fyrsta eintakið
afhent sem var af gerðinni Airbus A321 þann 25. apríl á þessu ári.
Fyrsta Airbus A321 þota Delta frá Mobile er jafnframt tólfta A321 þotan í flota félagsins sem hefur einnig 69 þotur af gerðinni
Airbus A320 í flotanum auk 57 eintaka af Airbus A319.
Airbus tilkynnti árið 2012 að til stæði að hefja framleiðslu á minni farþegaþotum í Ameríku og ári síðar var fyrsta skóflustungan
tekin að nýju verksmiðjunni.
Airbus A321 þotan sem var afhent til Delta er fimmtánda þotan sem Airbus afhentir frá verksmiðjunum í Mobile.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.