flugfréttir
Óttast um afrif 13 manns eftir að flugvél hvarf af ratsjá í Indónesíu
Sambandið við vélina rofnaði kl. 11:22 í dag að staðartíma
Óttast er um afdrif lítillar lögregluflugvélar sem hvarf af ratsjá í Indónesíu í dag en þrettán manns eru um borð í vélinni sem var í stuttu innanlandsflugi og þar af voru fimm manns í áhöfn.
Vélin sem er af gerðinni M28 Skytruck er tveggja hreyfla skrúfuvél en vélin fór í loftið frá bænum Pangkal Pinang á eyjunni Bangka, sem
liggur skammt austur af eyjunni Súmötru en förinni var heitið til eyjunnar Batam sem staðsett er suður af Singapore.
Samband við vélina rofnaði klukkan 11:22 að staðartíma eða klukkan 03:22 í nótt að íslenskum tíma en flugtíminn til Batam
var áætlaður 1:30 klukkustund.
Flugvélin sem leitað er af er af gerðinni M28 Skytruck
Talið er næsta víst að vélin hafi hrapað í sjóinn suður af Singapore og kemur fram að búið sé að staðsetja flak vélarinnar
en björgunarsveitir hafa í dag reynt að finna einhvern á lífi.
Flugherinn í Singapore sendi af stað Super Puma þyrlu auk þess sem Fokker 50 vél og Chinook-þyrlur taka þátt í björgunaraðgerðum
en þá er ein C-130 Hercules flugvél í viðbragðsstöðu.
Fram hefur komið að nokkrir sjómenn á fiskibátum hafi þegar fundið fatnað og ferðatöskur á floti í hafinu auk
þess sem nokkur flugvélasæti hafa fundist á floti.
Vélin var í innanlandsflugi frá Pangkal Pinang til eyjunnar Batam þegar hún hvarf
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.