flugfréttir
FAA gæti lækkað öryggisstuðul flugmála Bólivíu aftur niður í 2. flokk
Bólivía komst aftur í 1. flokkinn (Category 1) árið 2001
Svo gæti farið að bandarísk stjórnvöld muni lækka öryggismat flugmála í Bolivíu í kjölfar flugslyssins í Kólumbíu sl. þriðjudag er Avro RJ-85 þota frá LATAM Boliva fórst í aðflugi að Medellín með þeim afleiðingum að 76 manns létu lífið.
Reymi Ferreri, varnarmálaráðherra Bólivíu, segir að hugsanlega gæti farið svo að bandarísk yfirvöld muni lækka öryggisstuðil
í flugmálum í landinu eftir slysið.
Frá árinu 1994 hafði Bólivía verið á lista meðal landa þar sem flugmál eru skilgreind í öðrum flokki sem kallast „Category 2“ en árið 2001 ákváðu
bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) að uppfæra landið upp í 1. flokk (Category 1).
Ef landið fer aftur í 2. flokk þá mun Bólivía vera á lista með þeim örfáum löndum sem eru skilgreind sem svo að flugmál í viðkomandi
landi uppfylli ekki alþjóðakröfur um flugöryggi en á þeim lista eru t.am. Tæland og Bangladesh.
Þá myndi það einnig þýða að Boliviana de Aviacion, þjóðarflugfélag Bólivíu, mun ekki geta aukið umsvif sín í flugi til Bandaríkjanna
en í dag flýgur félagið aðeins eina flugleið til Bandaríkjanna sem er flug til Miami frá Santa Cruz.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.