flugfréttir
Bombardier fær pöntun frá Air Tanzania
Tölvugerð mynd af Q400 vél og CS300 þotu í litum Air Tanzania
Kanadíski flugvélaframleiðandinn Bombardier hefur fengið pöntun frá Tanzaníu en ríkisstjórnin þar í landi hefur staðfest pöntun í tvær CSeries CS300 þotur og eina Bombardier Q400 skrúfuvél.
Pöntunin er metin á 22 milljarða króna en allar vélarnar verða leigðar til Air Tanzania sem mun með tilkomu nýju vélanna geta aukið umsvif sín, bæði í innanlandsflugi
og millilandaflugi.
Jean-Paul Boutibou, varaforstjóri Bombardier, segir að CS300 þotan sé rétta vélin til að sinna þeim mörkuðum sem Air Tanzania ætlar sér að fljúga til
en félagið stefnir á að hefja flug frá Tanzaníu til Miðausturlanda auk Indlands.
Með þessu er heildarfjöldi pantanna í CSeries CS300 þoturnar komin í 360 þotur og þá hafa 566 eintök verið pöntuð af Bombardier Dash-8 Q400 vélinni
frá upphafi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.