flugfréttir

Sjálffljúgandi björgunarloftfar flýgur sitt fyrsta flug

- Tactical Robotics gerir prófanir á Cormorant loftfarinu

5. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 16:13

Ómannaða loftfarið Cormorant hefur verið í þróun hjá fyrirtækinu Tactical Robotics í Ísrael

Ný tegund af dróna var á dögunum flogið í fyrsta sinn en um er að ræða ómannað sjúkraloftfar sem mun koma til með að geta tekið þátt í björgunaraðgerðum.

Björgunaraðgerðir við erfiðar aðstæður í fjallendi og á erfiðum landssvæðum getur verið flókið verkefni en enn sem komið er hafa þyrlur reynst bestar við slíkar aðstæður í flestum tilvikum.

Ísraelska fyrirtækið Tactical Robotics hefur nú unnið að þróun á ómönnuðu loftfari sem nefnist Cormorant sem getur hafið sig lóðrétt á loft og er vonast til þess að þetta farartæki muni einn dag geta leyst þyrlur af við aðgerðir og aðstæður þar sem þær eiga erfitt með að athafna sig.

Loftfarið er hannað til þess að fljúga með fólk eða tækjabúnað án þess að neinn flugmaður sé við stjórnina og mun einskonar „vélmenni“ stjórna flugi vélarinnar.

Cormorant í tilraunaflugi

Í fyrsta fluginu var Cormorant aðeins flogið í tvær mínútur í lágflugi yfir hæðótt landslag en loftfarið flýgur eftir gögnum sem mötuð eru inn í flugtölvuna um borð og skynjarar, laserbúnaður og sérstök myndavél leiðbeina flugvélinni og koma í veg fyrir árekstur af hvaða tagi sem er.

Cormorant kemur með tveimur innbyggðum viftuhreyflum að aftan sem eru vel varðir gegn hnjaski og öflug ákvörðunartölva leggur mat á aðstæður ef upp koma vandræða og lætur loftfarið sjálft koma sér úr þeim aðstæðum og heilinn í tölvunni getur í verstu aðstæðum ákveðið ef best er að halda aftur heim þaðan sem flugferðin hófst eða prófa annað aðflug.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga