flugfréttir
TF-JOY væntanleg til landsins - Tólfta þotan hjá WOW air
- Myndbönd af TF-JOY í tilraunaflugi í Hamborg
TF-JOY verður tólfta þota WOW air
Tólfta og seinasta Airbus-þotan sem afhent verður til WOW air á þessu ári er væntanleg til landsins í vikunni en vélin ber skráninguna TF-JOY.
TF-JOY verður sjöunda Airbus A321 þotan í flota WOW air en vélin flaug fyrsta tilraunaflugið þann 24. nóvember en um er að ræða F1 sem er tilraunaflug sem á sér stað er nýrri flugvél hefur verið ýtt út úr samsetningu.
TF-JOY er áætluð til landsins í kvöld frá verksmiðjum Airbus í Hamborg
Seinna tilraunaflugið, F2, átti sér stað fjórum dögum síðar eða þann 28. nóvember en hér að neðan má sjá myndband af tilraunafluginu
sem flogið var frá Finkenwerder-flugvellinum í Hamborg í Þýskalandi.
Þá má einnig sjá myndband er tilraunir voru gerðar með TF-JOY þar sem vélin var látin hætta við flugtak (RTO).
Eftir að TF-JOY kemur til landsins þá mun flugfloti WOW air telja þrjár Airbus A320 þotur, sjö Airbus A321 vélar og þrjár Airbus A330-300
breiðþotur.
Myndband 1:
Myndband 2:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.