flugfréttir
Embraer frestar E175-E2 þotunni um ár
Fyrsta Embraer E175-E2 þotan var frumsýnd í febrúar á þessu ári
Embraer hefur ákveðið að fresta því að koma með Embraer E175-E2 á markað um eitt ár og munu afhendingar því frestast til ársins 2021 en upphaflega átti vélin að koma á markaðinn árið 2020.
Flugvélaframleiðandinn brasilíski kynnti E2 sem nýja kynslóð af E-þotunum árið 2013 en Embraer E175-E2 var
frumsýnd í febrúar á þessu ári og verður E175-E2 arftaki Embraer E-175 þotunnar sem er minnsta E-þotan sem Embraer
framleiðir.
Embraer segir að ekki sé raunhæft að koma með vélina strax á markaðinn og sé ein ástæða þess deilur milli flugmanna
hjá Delta Air Lines og stjórn félagsins sem neita að fljúga vélum sem eru þyngri en kemur fram í klausu í verklagsreglu
varðandi störf þeirra.
Samkvæmt nýjum kjarasamning meðal flugmanna þá kemur fram þyngd þeirra véla sem hver og einn flugmaður flýgur
og tilgreint er að flugmenn sem fljúga styttri flugleiðir fljúgi ekki vélum sem eru þyngri en 42 tonn og skuli þær ekki taka
meira en 76 farþega.
Reglurnar vernda þá flugmenn sem fljúga stærri vélum sem eru háttlaunaðir og kemur í veg fyrir að þeir fljúgi stórum þotum
á stuttum flugleiðum sem greidd eru lægri laun fyrir.
Meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað E175-E2 þotuna er SkyWest Airlines sem pantaði 100 eintök af vélunum en SkyWest Airlines
mun nota þær m.a. til að fljúga fyrir Delta Air Lines undir merkinu Delta Connection.
Embraer sér því fram á að ekki sé raunhæft að koma með vélina strax á markaðinn vegna þessa en Embraer E175-E2
verður nokkrum tonnum þyngri en Embraer E-175 þar sem Pratt & Whitney PW1715G hreyflarnir eru stærri og þyngri.
Enn sem komið er þá er SkyWest Airlines eina flugfélagið sem hefur pantað minnstu gerðina, Embraer E175-E2, en sex flugfélög
hafa pantað 90 eintök af E190-E2 og einnig 90 eintök af E195-E2.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.