flugfréttir

United ætlar að rukka fyrir handfarangursgeymslur

- Öldungardeildarþingmaður segir að með þessu sé síðasta vígið fallið

6. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:47

United Airlines mun rukka fyrir afnot af handfarangursgeymslum sé flugið bókað á Basic Economy

United Airlines ætlar að byrja að rukka farþega fyrir afnot af handfarangursgeymslum með því að koma á fót farrýminu Basic Economy en með því þurfa farþegar annaðhvort að greiða fyrir innritaðan farangur eða handfarangur.

Ef farþegar ætla að forðast að greiða fyrir farangurinn þá er eina leiðin að taka svo lítinn handfarangur með að hann passi undir sætið fyrir framan þá eða taka engar töskur með og fara allslausir í ferðalagið.

Öldungardeildarþingmaðurinn Chuck Schumer hefur hvatt United Airlines til að hætta við áform sín um að rukka farþegar fyrir handfarangursgeymslurnar og segir hann að með því sé síðasta vígið fallið.

Flugvélar United Airlines

„Geymslur fyrir handfarangurinn fyrir ofan sætin er síðasta vígið sem hefur verið látið til friðs þegar kemur að þægindum um borð og er það áhyggjuefni ef félagið - og mögulega önnur flugfélög líka - ætli að taka þetta frá farþegum“, segir Schumer.

„Flugfélögin rukka nú þegar fyrir innritaðan farangur, hnetur, heyrnartól, púða og nú á að taka handfarangursgeymslurnar af þeim“, segir ennfremur í tilkynningu frá Schumer.

Farþegar munu samt sem áður ennþá hafa þann möguleika á að bóka Premium Economy hjá United Airlines þar sem geymslur fyrir handfarangur er innifalinn en þrátt fyrir það þá segir Schumer að farþegar séu orðnir þreyttir á því að þurfa greiða fyrir hverja tösku sem þeir taka með sér um borð.

United Airlines ætlar með þessu að auka hagnað sinn um einn milljarða dollara fyrir árið 2020 en önnur flugfélög ætla að sjá hvernig þetta mun ganga hjá United áður en þá taka ákvörðun um að rukka einnig fyrir handfarangursgeymslur.

Önnur flugfélög hafa einnig Basic Economy farrými en öll þau félög leyfa farþegum að nota handfarangursgeymslurnar þeim að kostnaðarlausu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga