flugfréttir
Samruni Alaska Airlines og Virgin America fær grænt ljós
Í apríl á þessu ári var tilkynnt um kaup Alaska Airlines í Virgin America
Bandarísk stjórnvöld hafa gefið grænt ljós fyrir samruna Alaska Airlines og Virgin America en það var í apríl á þessu ári sem tilkynnt var um að Alaska Airlines myndi kaupa allan hlut í Virgin America.
Brad Tilden, framkvæmdarstjóri Alaska Airlines, segir að félagið sé í skýjunum yfir þessum fréttum og verði með leyfinu nú
hægt að byrja á því að láta þessi tvö flugfélög starfa saman og mynda sterkan keppinaut fyrir hin bandarísku flugfélögin.
Með þessu mun Alaska Airlines fá aðgang að þeim afgreiðsluplássum á Dallas Love Field, New York LaGuardia og Washington
National sem Virgin America hafði fengið úthlutað frá American Airlines við samruna þess félags við US Airways.
Alaska Airlines keypti Virgin America fyrir 491 milljarð króna og er talið að félagið muni ganga frá greiðslunni á næstunni vegna
kaupanna og yfirtökunnar á félaginu.
Staða Alaska Airlines er sterkust á vesturströnd Bandaríkjanna og þá aðallega í norðvestur fylkjunum og á flugleiðinni til og frá Alaska en Virgin America hefur hinsvegar haft sterka stöðu í Kaliforníu en félagið flýgur m.a. til yfir 20
áfangastaða frá San Francisco.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.