flugfréttir

Flugslys í Kólumbíu: Boeing 727 fór út af vallarsvæði í flugtaki og fórst 8 km frá

- Fjórir látnir af fimm manna áhöfn

21. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:40

Vélin var í flugtaki á flugvellinum í Puerto Carreno um 11-leytið í gærkvöldi að íslenskum tíma

Fjórir eru látnir eftir flugslys í Kólumbíu í gærkvöldi er fraktþota af gerðinni Boeing 727 fórst skömmu eftir að hafa náð að hefja sig of seint á loft en vélin fór út af flugvallarsvæðinu í flugtaksbruninu.

Tveir einstaklingar náðu sitthvoru myndbandinu sem þeir tóku upp er þeir ætlaði að festa flugtakið á filmu þar sem þeir biðu vélarinnar sem brunaði framhjá þeim gegnum grinverkið og hélt áfram út á tún.

Vélin, sem var frá flugfélaginu AeroSucre, var í flugtaki á flugvellinum í Puerto Carreno í austurhluta Kólumbíu og var vélin á leiðinni til höfuðborgarinnar Bogota.

Vélin náði á endanum að hafa sig á loft en missti hæð og fórst í um 8 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum og varð alelda.

Myndband náðist einnig sem tekið var í fjarska sem sýnir er vélin lækkar flugið og fer niður fyrir sjóndeildarhringinn en skömmu síðar kemur mikill eldhnöttur og svartur reykur.

Fimm manna áhöfn var um borð í vélinni en að sögn frétta náðist að bjarga tveimur á lífi en einn þeirra lést síðar af sárum sínum á spítala.

Fraktflugfélagið AeroSucre var stofnað í Bogota árið 1969 en félagið hafði tvær Boeing 727-200F þotur í flota sínum auk sem sem félagið hefur einnig eina Boeing 737-200F þotu.

Um er að ræða annað flugslysið í Kólumbíu í mánuðinum en aðeins eru 3 vikur síðan að 71 lét lífið er þota af gerðinni British Aerospace Avro RJ-85 fórst skömmu yfir lendingu í aðflugi að Medellín með brasilískt fótboltalið um borð.

Myndband 1:



Myndband 2:



Myndband 3:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga