flugfréttir

Flugslys: Rússnesk þota með 93 manns um borð fórst yfir Svartahafi

- Tupolev Tu-154 á vegum rússneska hersins fórst á leið til Sýrlands

25. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:49

Vélin sem fórst var af gerðinni Tupolev Tu-154

Enginn hefur fundist á lífi eftir mannskætt flugslysi er þota á vegum rússneska hersins, af gerðinni Tupolev Tu-154, fórst yfir Svartahafi í nótt en um borð í vélinni voru 85 farþegar og átta manna áhöfn og þar af meðlimir kórsins Alexandrov Ensemble.

Vélin hrapaði nokkrum mínútum eftir flugtak frá flugvellinum í borginni Sochi þar sem vélin hafði viðkomu til að taka eldsneyti á leiðinni frá Moskvu til Latakia í Sýrlandi.

Vélin var nýfarin í loftið frá Sochi en skömmu eftir flugtak tók hún beygju og snéri við í átt að ströndinni en augnabliki síðar, klukkan 2:25 í nótt að íslenskum tíma, hvarf hún af ratsjá.

Vélin fórst nokkrum mínútum eftir flugtak frá Sochi í nótt

64 af þeim 84 farþegum sem voru um borð voru meðlimir í kórnum Alexandrov Ensemble sem er opinberi herkór Rússlands, stofnaður árið 1928 í Sovíetríkjunum, en kórinn átti að koma fram gamlárskvöld í rússnesku herstöðinni Hmeymim í Sýrlandi.

Viktor Ozerov, formaður varnarmálanefndar rússneska þingsins, segir fullviss um að ekki sé um hryðjuverk að ræða og telur að orsök slyssins sé frekar vegna bilunar.

„Vélin þurfti að taka u-beygju eftir flugtak þegar hún var yfir hafinu og getur verið að hún hafi tekið ranga beygju“, segir Ozerov en veður var með ágætum á svæðinu er vélin fórst samkvæmt veðurupplýsingum.

Rússneska varnarmálaráðuneytið segir að búið sé að koma auga á flakið á 50 metra dýpi í Svartahafinu í um 1.5 kílómetra fjarlægð frá Sochi.

Vélin sem fórst var 33 ára gömul, framleidd árið 1983, en henni hafði verið flogið 6,689 klukkustundir. Seinasta umfangsmikla yfirhalning var gerð á vélinni þann 29. desember árið 2014 en seinasta reglubundna skoðun fór fram í september í haust.

Vélin sem fórst bar skráninguna RA-85572

Rannsókn á slysinu er nú þegar hafin og þá hefur sakamálarannsókn einnig hafist þar sem skoðað verður hvort að slysið hafi borið að með saknæmum hætti.

Síðasta myndin sem tekin var af vélinni áður en hún lagði af stað frá Sochi



Alexandrov Ensemble kórinn







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga