flugfréttir
Tvær litlar flugvélar flugu á hvora aðra í Texas
- Feðgar meðal þeirra þriggja sem létust
Slysið átti sér stað á gamlársdag í bænum McKinney í Texas
Þrír létust er tvær litlar flugvélar skullu saman á flugi nálægt flugvelli skammt frá bænum McKinney í Texas á gamlársdag.
Vélarnar féllu til jarðar en önnur hafnaði við geymsluhúsnæði í iðnaðarhverfi á meðan önnur kom niður á gatnamótum nálægt hraðbraut
skammt frá.
Vitni að atburðinum, sem var farþegi í bíl, sagðist hafa verið að horfa á eina Cessnu á flugi þegar önnur lítil flugvél kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti og flaug á hana.
Vélarnar fóru í loftið frá Aero Country flugvellinum en enginn flugturn er á þeim flugvelli og þurfa flugmenn að tilkynna flugtök og lendingar
í gegnum talstöð.
Önnur vélin brotlenti á umferðargötu skammt frá Home Depot
Báðar vélarnar voru í sjónflugi að sögn bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) yfir þéttbýlu íbúðarsvæði
þegar þær skullu saman.
Meðal fórnarlamba í annarri vélinni voru feðgar, karlmaður á sextugsaldri og 18 ára sonur hans, en að sögn fjölskylduvinar var vélin
nýfarin á loft og var að taka sína fyrstu beygju þegar önnur flugvél stefndi á þá og skall á stélið á vélinni hjá feðgunum.
Einn var um borð í hinni vélinni sem var karlmaður á fimmtugsaldri en sú vél féll til jarðar á iðnaðarsvæði og brotlenti ofan á báti og varð alelda.
Rannsóknaraðilar frá samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) eru væntanlegir í dag til McKinney til að rannsaka orsök slyssins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.