flugfréttir
Airbus hannar nýja kynslóð af miðvængjafestingu
Hönnuðir og verkfræðingar við frumeintakið af miðvængjafestingunni
Verkfræðingum og hönnuðum hjá Airbus hefur tekist að framleiða nýja kynslóð af miðvængjafestingu með nýrri tækni sem er einfaldari í smíðum.
Um er að ræða fyrstu miðvængjafestinguna („centre wing box“) sem framleidd er í heilu lagi án þess að vera samsett úr mörgum
mismunandi hlutum en þessi eining festir saman vængi flugvéla í miðjum skrokknum.
Það var hönnunar- og rannsóknartæknideild Airbus í Toulouse og Nantes sem hannaði nýju eininguna en með tækninni má
minnka framleiðslukostnaðinn um 20 prósent.
Notast var við nýjustu tækni í samsetningarefnum sem fól í sér samsetningu á flóknum einingum sem sett eru saman með trefjaefnablöndu.
Næstu skref er að fara í enn frekari þróun og undirbúa framleiðsluferli svo hægt sé að notast við þessa tækni fyrir fjöldaframleiðslu
á næstu miðvængjafestingum fyrir næstu kynslóð af flugvélum sem verða framleiddar hjá Airbus.
Tölvuteikning af miðvængjafestingunni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.