flugfréttir

Flugslysið í Kyrgistan: Flugmennirnir með 10.800 og 5.900 flugtíma að baki

- Annar svörtu kassanna er fundinn

16. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:37

Um borð í Boeing 747-400F fraktþotunni var fjögurra manna áhöfn. Tveir flugmenn, hleðslumeistari og flugvirki

Búið er að finna annan af svörtu kössum Boeing 747 fraktþotunnar sem fórst í nótt í aðflugi að Manas-flugvellinum í Bishkek í Kyrgistan.

Ekki kemur fram hvort um sé að ræða flugritann eða hljóðrita vélarinnar en leit stendur yfir að hinum svarta kassanum.

Óstaðfestar fregnir herma að vélin hafi ætlað að hætta við lendingu og fara í fráflug („go around“) rétt áður en hún fórst í þorpi skammt frá flugbrautinni.

Eitt af hjólastellum vélarinnar í rústunum

37 manns létu lífið í slysinu, fjórir í áhöfn vélarinnar og 28 manns á jörðu niðri sem voru íbúar í þeim 15 húsum sem eyðilögðust er vélin brotlenti í þorpinu.

Frakþotan var í eigu ACT Airlines, sem einnig er þekkt sem MyCargo Airlines, en vélin var í leigu hjá fraktdeild Turkish Airlines sem heitir Turkish Cargo.

Í fréttatilkynningu frá ACT Airlines kemur fram að flugstjóri vélarinnar hét Ibrahim Gürgan Diranci og með honum var flugmaðurinn Kazim Öndül. Í áhöfninni var einnig Melih Aslan sem stjórnaði hleðslu á fraktinni og flugvirkinn, Ishan Koca.

Mjög reyndir flugmenn eftir að hafa flogið í tyrkneska flughernum

Báðir flugmennirnir, Ibrahim Gürgan Diranci og Kazim Öndül, voru mjög reyndir og segir ACT Airlines að félagið hafi misst mjög góða og sérhæfða flugmenn sem báðir höfðu að baki mikla reynslu eftir að hafa flogið í tyrkneska flughernum.

Áhöfn vélarinar. Frá vinstri: Flugstjórinn Ibrahim Gürgan Diranci, Kazim Öndül „first officer“, hleðslumeistarinn Melih Aslan og Ishan Koca, flugvirki

Flugstjórinn Diranci hafði 10.821 flugtíma að baki og þar af 833 flugtíma á Boeing 747-400 en Öndül hafði 5.910 flugtíma og þar af 1.771 flugtíma á Boeing 747.

Hleðslumeistarinn, Melih Aslan, hafði starfað hjá ACT Airlines í 10 ár en hann hóf störf hjá félaginu árið 2007. Flugvirkinn, Ishan Koca, hóf störf hjá félaginu s árið 2006 en hann hafði starfað í mörg ár hjá tyrkneska flughernum.

Áhöfnin hafði viðdvöl í Hong Kong í tæpa þrjá sólarhringa og höfðu flugmennirnir því fengið hvíldartíma í 69 klukkustundir frá þeir lentu á Chep Lap Kok flugvellinum eftir seinasta flug en förinni var heitið til Istanbul með viðkomu í Bishkek til að taka eldsneyti.

Ekki var tilkynnt um neina bilun eða tæknileg vandamál á leiðinni

Um borð í vélinni voru 85 tonn af almennri frakt sem er 73% af þeirri þyngd sem Boeing 747-400F getur borið sem eru 116 tonn. Fraktinni var komið örugglega fyrir um borð í vélinni og þá er ekkert sem bendir til þess að bilun af neinu tagi hafi komið upp en flugmennirnir tilkynntu ekki um nein tæknileg vandamál á leiðinni eða fyrir lendingu.

Rannsókn slyssins er í höndum flugmálayfirvalda í Kyrgistan. Enn er ekki vitað neitt um orsök slyssins en í tilkynningu segir að nánar verði skýrt um orsökina þegar tildrög slyssins koma í ljós.

Myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga