flugfréttir
Flynas í Sádí-Arabíu pantar sextíu Airbus A320neo þotur
Frá blaðamannafundinum í Riyadh er tilkynnt var um flugvélakaupin
Sádí-arabíska flugfélagið flynas hefur skrifað undir samning við Airbus um kaup á sextíu farþegaþotum af gerðinni Airbus A320neo en félagið er stærsta lágfargjaldafélagið í Sádí-Arabíu.
Samningurinn var undirritaður í gær á blaðamannafundi sem fram fór í borginni Riyadh en félagið ákvað einnig að breyta
hluta af fyrri pöntun í tuttugu Airbus A320 þotur yfir í A320neo og á félagið því von á að fá attatíu Airbus A320neo afhentar næsta
áratuginn.
Flynas mun fá fyrstu Airbus A320neo þotuna afhenta á næsta ári en afhendingar munu standa yfir til ársins 2026.
Flynas var stofnað árið 2007 og hefur félagið í dag 26 Airbus A320 þotur í flota sínum sem fljúga til 23 áfangastaða
í Sadí-Arabíu, Miðausturlöndum og í Afríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.