flugfréttir
Aeroflot sækir um gjaldþrotaskipti fyrir Orenair og Donavia
- Bæði félögin hafa sameinast Rossiya Airlines
Boeing 777 þota Orenair
Aeroflot hefur farið fram á gjaldþrotaskipti fyrir Orenair og flugfélagið Donavia en bæði félögin hættu starfsemi sinni í fyrra og voru sameinuð rekstri Rossiya Airlines.
Beiðni um gjaldþrotameðferð fyrir Orenair var send inn til dómara í Orenburg og sótt var um gjaldþrotameðferð fyrir Donavia í
borginni Rostov.
Orenair var stofnað árið 1992 en í fyrra sameinaðist það rekstri Rossiya Airlines sem er einnig í eigu Aeroflot og það sama má
segja um Donavia sem sameinaðist Rossiya Airlines einnig árið 2016 en það félag var stofnað árið 2000.
Aeroflot eignaðist hlut í fimm flugfélögum árið 2011 og þar á meðal keypti félagið hlut í Orenair, Donavia og Rossiya en árið 2015
tilkynnti Aeroflot að rekstur flugfélaganna þriggja myndi sameinast undir merkjum Rossiya Airlines en Orenair og Donavia hættu að fljúga undir sínum merkjum árið 2016.
Airbus A319 þota Donavia árið 2013
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.