flugfréttir
Aldrei áður eins nákvæmar upplýsingar um flugumferð við norðurpólinn
- Isavia gerir samning við Aireon um Space Based ADS-B kerfið
Cyriel Kronenburg frá Aireon og Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia.
Isavia hefur undirritað samning við fyrirtækið Aireon um notkun á geimlægum kögunarbúnaði til þess að stýra flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu með svokallaðri „Space Based ADS-B“ tækni.
Með þessari tækni verður hægt að fá nákvæmari upplýsingar um staðsetningu flugvéla í nyrðri hluta íslenska flugstjórnarsvæðisins en Isavia er nú þegar með ADS-B búnað á
umferðarmesta hluta íslenska flugstjórnarsvæðisins en sá búnaður byggir á jarðstöðvum sem staðsettar eru á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
Með geimkögunarbúnaðinum, sem staðsettur verður í 75 gervihnöttum, mun nást sama nákvæmni í staðsetningu flugvéla um allt íslenska flugstjórnarsvæðið, allt upp að norðurpólnum.
Íslenska flugumferðarsvæðið er eitt það stærsta í heimi
Þegar búnaðurinn verður kominn upp mun Isavia framkvæma prófanir fyrir norðan 70. breiddargráðu til þess að meta til fullnustu hagræðið sem verður af breytingunni en aldrei áður
hefur verið hægt að fá svo nákvæmar upplýsingar um flugumferð við pólsvæðið.
Öryggi, hagkvæmni og minni útblástur
Íslenska flugstjórnarsvæðið er 5,4 milljón ferkílómetrar að stærð og eitt hið stærsta í heiminum og fóru 165.000 flugvélar um svæðið á árinu 2016 en með aukinni
staðsetningarnákvæmni innan svæðisins verður hægt að minnka aðskilnað milli flugvéla þannig að fleiri vélar geta í senn flogið við hagkvæmustu flugskilyrðin.
Með þessu geta flugfélögin minnkað eldsneytiseyðslu og útblástur gróðurhúsaloftegunda en hinn nýi búnaður stuðlar því að auknu öryggi, minnkuðum umhverfisáhrifum og
sparnaði hjá flugfélögum.
Mikilvægt svæði
Íslenska flugstjórnarsvæðið tengir saman mörg flugstjórnarsvæði á Norður-Atlantshafi, hið kanadíska, írska, norska og rússneska og er Isavia lykilaðili í öruggum og hagkvæmum flugsamgöngum yfir Norður-Atlantshafið.
Með innleiðingu á þessari nýju tækni mun Isavia geta boðið bestu þjónustu sem völ er á í dag á þessu stóra og mikilvæga flugstjórnarsvæði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.