flugfréttir

Orðrómur um að Air China sé að fara kaupa Cathay Pacific

18. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:23

Cathay Pacific hefur höfuðstöðvar sínar á flugvellinum í Hong Kong

Orðrómur er uppi um að Air China muni taka yfir rekstri flugfélagsins Cathay Pacific Airways með því að kaupa allan hlut í félaginu en Air China á nú þegar 29 prósent í Cathay Pacific.

Um óstaðfestar fregnir er að ræða en aðili innan Cathay Pacific greinir frá þessu og segir að tilkynnt verði um kaupin á morgun.

Þessar fregnir birtust á vefsíðunni Corporation China en tilraunir miðilsins til að ná á John Slosar, forstjóra Cathay Pacific, og fá staðfestingu á fréttunum hafa ekki borið árangur.

Cathay Pacific er 10. stærsta flugfélag heims og eitt stærsta flugfélag Asíu með höfuðstöðvar á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong en félagið, sem hefur yfir 140 þotur í flota sínum, hefur nokkrum sinnum verið valið sem besta flugfélag í heimi af Skytrax.

Boeing 747 þota Cathay Pacific í flugtaki frá Chek Lap Kok flugvellinum

Rekstur Cathay Pacific hefur gengið frekar erfiðlega upp á síðkastið en í gær tilkynnti félagið að til stæði að breyta rekstri félagsins, skera niður og einfalda leiðarkerfið og segja upp starfsfólki.

Þá stendur til að endurskipuleggja fyrirkomulag í deildum er snúa að tölvukerfi, rekstri, mannauð, flugfrakt og fjármálum og segir í tilkynningu að miklar breytingar verði gerðar á þessu ári í stjórnun og fyrirkomulagi.

Cathay Pacific er 71 árs en félagið var stofnað árið 1946 af Ástralanum Sydney H. Kantzow og Bandaríkjamanninum Roy C. Farrell en félagið var fyrsta flugfélag í heimi til þess að fljúga beint yfir norðurpólinn árið 1998.

Þá er fraktflugfélagið, Cathay Pacific Cargo, eitt það stærsta í Asíu en félagið hefur yfir 20 júmbó-fraktþotur sem fljúga til yfir 40 áfangastaða um allan heim.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga