flugfréttir
Alvarlegur skortur á flugkennurum á Íslandi
- Missa fjölmarga flugkennara yfir til íslensku flugfélaganna
Íslenskir flugskólar hafa sl. 2 ár verið að missa fjölda flugkennara yfir til íslensku flugfélaganna
Alvarlegur skortur er á flugkennurum á Íslandi og hefur komið upp sú staða þar sem helstu flugskólar landsins hafa þurft að leita út fyrir landsteinanna eftir flugkennurum til að koma til móts við aukna eftirspurn í flugnám.
Ástæðan fyrir þessum skorti er aukin umsvif hjá íslensku flugfélögunum sem hafa ráðið fjölda flugkennara til sín í vinnu sem hafa m.a. fengið störf hjá Icelandair og WOW air en bæði flugfélögin hafa verið í miklum vexti sl. misseri í samræmi og fjölgað áfangastöðum og bætt við sig fleiri flugvélum.
Algengt hefur verið að sumir nemendur sem hafa lokið atvinnuflugmannsnáminu hafi tekið flugkennararéttindi til að safna flugtímum
og styrkja kunnáttu sína á meðan þeir reyna að komast að hjá flugfélögunum en núna er farið að vera algengara að flugnemar
komist beint að sem flugmenn að loknu námi.
„Þetta ár er örugglega með verri árunum. Þetta ár og það seinasta“, segir Snorri Snorrason, skólastjóri Flugakademíu Keilis, sem tekur fram að mjög jákvætt sé hversu mikil tækifæri séu að skapast fyrir flugnema og flugkennara sem eru að þróa sig áfram á flugferlinum þótt það bitni á skólanum.
Skortur á flugkennurum hefur þó ekki áhrif á flugkennslu hér á landi
Skorturinn hefur ekki áhrif á rekstur skólans
Flugakademía Keilir hefur verið að ráða erlenda flugkennara og er meirihluti þeirra, sem kenna hjá skólanum í dag, erlendir flugkennarar
en Snorri segir það þó ekki koma í veg fyrir skortinn þar sem íslensku flugfélögin ráða einnig erlenda flugmenn.
„Við vorum núna nýlega að missa tvo erlenda flugmenn frá okkur“, segir Snorri sem tekur fram að vandamálið hafi samt
ekki áhrif á starfsemi skólans.
„Við skoðum stöðuna í hvert skipti sem við tökum inn nýja nemendur og það veltur fyrst
og fremst á fjölda kennsluvéla sem eru tiltækar auk veðurs. En þrátt fyrir skort á flugmönnum þá höfum við mjög góða reynslu af erlendum kennurum og það er alls ekki skortur á flugkennurum í heiminum“, segir Snorri í samtali við Alltumflug.is
Snorri segir að skorturinn muni samt aldrei breyta því að skólinn leiti ávallt eftir hæfum flugkennurum sem uppfylli skilyrði skólans
og sé aldrei farið út í að ráða hvaða flugkennara sem er vegna skorts.
Mælir með flugkennslu með atvinnufluginu
Flugakademía Keilis hefur m.a. auglýst eftir flugkennurum erlendis enda nauðsynlegt að koma til móts við þau tækifæri sem eru í boði
en einnig eru sumir atvinnuflugmenn sem eru líka flugkennarar og kenna nýjum nemendum á milli þess sem þeir eru að fljúga fyrir
flugfélögin.
„Ég mæli með því líka að ef þú ert með mikinn áhuga á fluginu og hefur áhuga á því að kenna að þá er það mjög sterkur leikur
fyrir flugmanninn sjálfan að þróa sig áfram sem fagmann með því að kenna flug með atvinnufluginu“, segir Snorri.
Ein af kennsluvélum Flugskóla Íslands
Íslands
Sömu sögu er að segja af Flugskóla Íslands sem hefur einnig þurft að grípa til aðgerða með því að ráða erlenda flugkennara
vegna skorts á flugkennrunum.
Nýbúnir að ráða norska flugkennara sem þeir misstu strax til flugfélags
„Við vorum komnir með tvo Norðmenn og þar af einn yfirflugkennara sem er Norðmaður ég var varla búinn að ráða þá til starfa
þegar íslenskt flugfélag var búið að ráða þá báða og við missum þá núna í mars“, segir Guðlaugur Sigurðsson, rekstarstjóri flugdeildar hjá Flugskóla Íslands.
Guðlaugur segir að skólinn sé að leita eftir flugkennurum til Skandinavíu og stefnir í að skólinn verði allavega með fjóra, nýja erlenda
flugkennara í sumar.
„Við höfum aldrei fyrr þurft að leita út fyrir landsteinanna eftir flugkennurum“, segir Guðlaugur en hann segir ástæðuna vera
vegna gríðarlegs fjölda af ráðningum hjá flugfélögunum undanfarin ár og segir hann flugfélög vera farin að taka fyrr við nýjum flugmönnum sem sjá þá ekki
ástæðu til þess að taka kennararréttindi til að safna tímum.
„Ef flugfélög væru ekki að ráða nýútskrifaða flugmenn þá myndu fleiri koma á kennaranámskeið. Þeir þurfa ekki að safna eins mörgum tímum og komast bara beint inn“, segir Guðlaugur sem kallar þetta lúxusvandamál.
Guðlaugur segir að Flugskóli Íslands horfi aðallega til Skandinavíu eftir erlendum flugkennurum þar sem þeir eru meðal annars svipaðir okkur Íslendingum að ýmsu leyti.
Fyrir áhugasama þá má geta þess að þrír helstu flugskólar landsins munu allir taka inn nýja nemendur í flugkennaranámskeið sem hefjast í vor hjá öllum skólunum.
Næstu flugkennaranámskeið hjá Flugakademíu Keilis hefjast þann 7. apríl, hjá Geirfugli hefst flugkennaranámskeið þann 21. mars og hjá Flugskóla Íslands þann 6. mars.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.