flugfréttir
Telja að heilsufarsvandamál flugliða megi rekja til nýrra búninga
- Óvenju margar flugfreyjur og flugþjónar tilkynna um óþægindi
American Airlines tók búningana nýju í notkun í september 2016
Óvenju margar flugfreyjur og flugþjónar hjá American Airlines hafa veikst um borð í flugi eða fundið fyrir óþægindum sl. mánuði.
Margir áhafnarmeðlimir hafa m.a. fundið fyrir pirringi í auga og hálsi auk höfuðverks en margir telja að þetta
hafi eitthvað að gera með þá nýju búninga sem hannaðir voru fyrir American Airlines sem starfsfólk félagsins
byrjaði að klæðast í september sl. haust.
Samkvæmt starfsmannafélaginu Association of Professional Flight Attendants, sem fer fyrri þeim 25.000
flugfreyjum og flugþjónum sem starfa hjá félaginu, þá hafa 2.300 af þeim tilkynnt um ýmiskonar heilsufarsvandamál
sem þeir telja að rekja megi til búningsanna.
Búningarnir eru gerðir úr ullarblöndu á meðan skyrtur og blússur eru úr bómul en búningarnir eru framleiddir
af fyrirtækinu Twin Hill sem er dótturfyrirtæki Tailored Brands.
American Airlines hefur nú þegar varið um 110 milljónum króna í þrjár mimsunandi prófanir til að ganga úr skugga um að í búningnum
séu einhver heilsuspillandi efni sem gæti verið orsakavaldurinn fyrir þessari háu veikindatíðni.
Talsmaður American Airlines fullyrðir að búningarnir séu öryggir en félagið hefur leyft þeim flugfreyjum og flugþjónum, sem
finna fyrir óþægindum, að skipta um og klæðast gömlu búningunum.
Robert Ross, formaður flugfreyjufélags American Airlines, segir í bréfi til American Airlines að því miður þá
séu búningarnair enn heilsuspillandi.
Stéttarfélagið vinnur einnig að því að framkvæmda heilsufarsprófanir á efninu í búningunum en enn er engin
lausn fundin á vandamálinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.