flugfréttir

Flugvirkjar fundu byssukúlu í væng á Boeing 767 við skoðun

19. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:04

Vélin var nýlent á flugvellinum í São Paulo eftir flug frá Barcelona

Gat eftir byssukúlu fannst á væng á breiðþotu af gerðinni Boeing 767-300 hjá suður-ameríska flugfélaginu LATAM við reglubundna viðhaldsskoðun á Guarulhos-flugvellinum í São Paulo.

Vélin var nýlent eftir flug frá Barcelona um helgina þegar hún fór í skoðun samkvæmt viðhaldsáætlun en vélinni hafði vikuna áður verið flogið m.a. til New York og Lima frá São Paulo og Rio de Janeiro.

Talsmaður LATAM segir að ógjörningur sé á að átta sig á því hvar þetta gerðist en skotgatið fannst á raufungum („slats“) á vinstri væng vélarinnar og við nánari skoðun fannst byssukúlan sjálf.

Talið er að gatið hafi farið framhjá þeim flugmönnum sem flugu vélinni er þeir fóru eftirlitsferð í kringum þotuna fyrir brottför þar skotið var ofan á raufungnum og ekki sjáanlegt frá flughlaðinu.

„Það er engin leið að vita hvenær eða hvar þetta gerðist. Flugvélin flýgur til margra staða“, segir talsmaður félagsins sem tekur fram að ekki á neinum tímapunkti hafi farþegar verið í hættu.

Einn brasilískur fréttamiðill segist hafa heimildir fyrir því að skotið hafi verið á þotuna er hún var í aðfluginu að Guarulhos-flugvellinum í São Paulo en það hefur þó ekki fengist staðfest.

Búið er að gera lögregluyfirvöld viðvart sem munu rannsaka málið nánar.

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga