flugfréttir
MH370: Bjóða fundarlaun fyrir malasísku farþegaþotuna
- Ekki verður farið út í nýja leit án nýrra vísbendinga
Í mars verða þrjú ár liðin frá því að malasíska farþegaþotan hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking
Stjórnvöld í Malasíu hafa tilkynnt að þau ætli að veita fundarlaun fyrir þá aðila sem tekst að finna flak malasísku farþegaþotunnar, flug MH370, sem hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking í mars árið 2014.
Stjórnvöld í Ástralíu, Malasíu og í Kína tilkynntu á mánudag að þjóðirnar hafi formlega
hætt leitinni að vélinni sem hvarf með dularfullum hætti fyrir næstum 3 árum síðan og
hefur seinasta skipið yfirgefið leitarsvæðið í Suður-Indlandshafi.
Eins og staðan er í dag bendir margt til þess að verið sé að skila eftir eitt dularfyllsta hvarf
í flugsögunni í lausu lofti og með því verði ekki hægt að fá svar við því hvað varð
um vélina með þeim 239 manns sem voru um borð.
Ekki hefur komið fram hvort að önnur leit muni hefjast þrátt fyrir að svo hafi verið nefnt
en Abdul Aziz Kaprawi, samgönguráðherra Malasíu, sagði í dag að ríkisstjórn landsins væri
opin fyrir því að leyfa einkafyrirtækjum að spreyta sig og standi til að veita
fundarlaun ef þeim tekst að finna flugvélina.
Abdul Aziz Kaprawi, samgönguráðherra Malasíu
„Þau munu þurfa að standa fyrir kostnaði að leitinni en við munum veita þeim fundarlaun
ef þeim tekst að finna flakið“, segir Abdul Aziz.
Ekki hefur verið nefnt hversu há upphæðin er sem er í boði en þau fyrirtæki sem hafa
áhuga á því að taka leitina að sér geta sett sig í samband við yfirvöld í Malasíu.
Ákvörðunin um að hætta leitinni að flugi MH370 hefur vakið upp hörð viðbrögð og reiði meðal
ættingja og aðstandenda þeirra sem voru um borð sem krefjast þess að leitinni verði
haldið áfram en vísbendingar hafa komið fram um að vélin hafi farið í sjóinn mun norðar en þar sem leitin hefur farið fram hingað til.
„Við vitum að ættingjar og aðstandendur eru ósáttir með að leitinni hafi verið hætt. Við getum
ekki haldið áfram á meðan það eru engar nýjar vísbendingar. En ef það eru einhver fyrirtæki
sem vilja taka leitina að sér þá því ekki?“, segir Abdul Aziz.
Alls hafa um 30 hlutir fundist sem talið er vera brak af vélinni sem hefur rekið á land við strendur
Afríku og á Réunion-eyju í Indlandshafi.
Stjórnvöld í Ástralíu hafa ekki útilokað að ný leit muni hefjast.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.