flugfréttir
Air Greenland mun senda sinn stærsta fugl til Íslands
- Tímabundið leiguflug í sumar til Keflavíkur með Airbus A330-200
Airbus A330-200 breiðþota Air Greenland
Air Greenland mun koma til með að fljúga til Íslands tímabundið í sumar með breiðþotu af gerðinni Airbus A330-200 en að félagið hefur að öðru leyti notað Dash-8-200 vélar í fluginu til Keflavíkur.
Þetta kemur fram samkvæmt flugupplýsingum úr gagnagrunni sem heldur utan um
þær flugferðir sem búið er að skipuleggja meðal helstu flugfélaga í heiminum þar sem
tilgreindar eru þær tegundir flugvélar sem áætlað er að nota.
Jacob Nitter Sørensen, yfirmaður yfir flugrekstrardeild Air Greenland, segir í samtali við Alltumflug.is að um sé að ræða leiguflug
en ekki farþegaflug í þessu tilviki.
Airbus A330 breiðþota Air Greenland
Air Greenland flýgur til Keflavíkurflugvallar frá Kangerlussuaq, Narsarsuaq og Nuuk en
félagið ætlar að fljúga nokkur flug til Keflavíkur frá Kangerlussuaq með Airbus A330-200 þotu frá 7. ágúst
fram til 2. september en ekki kemur fram hversu margar flugferðir verða farnar.
Air Greenland hefur eina Airbus A330-200 þotu sem er eina breiðþota félagsins og einnig eina þotan í flotanum
en félagið notar hana vanalega í flugi milli Grænlands og Kaupmannahafnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.