flugfréttir
Hættu við lendingu þar sem freyjurnar höfðu ekki náð að tryggja farþegarýmið
- Farþegar sögðu þær hafi bara kjaftað saman og skoðað símana alla leiðina
Um borð í vél easyJet. Myndin tengist ekki fréttinni beint
Farþegaþota frá easyJet þurfti sl. föstudag að hætta við lendingu á Gatwick-flugvellinum í London og fara í fráflug („go around“) þar sem flugfreyjurnar voru ekki búnar að undirbúa farþegarýmið fyrir lendingu í tæka tíð.
Nokkrir farþegar, sem voru um borð í vélinni, sem var að koma frá Tenerife, sögðu að flugfreyjurnar
hafi verið of uppteknar við að kjafta saman og skoða myndir í símanum í dágóðan tíma.
Eftir fjögurra tíma flug þegar vélin var farin að lækka flugið kom flugstjórinn í kallkerfið og sagði að lendingu
myndi seinka án þess að gefa upp ástæðu fyrir seinkuninni.
„Mest allt flugið voru þær aftur í að kjafta og sýna hvor öðrum myndir í símanum sínum og þá sérstaklega
yfirflugfreyjan sem virtist gera varla neitt um borð - Það var eins og það væri bara partý hjá þeim“, segir
ein kona, sem var farþegi um borð í vélinni í viðtali við breska fjölmiðla.
„Svo þegar flugstjórinn kom aftur í kallkerfið um 15 mínútum síðar þá hlupu þær um allt í óðagoti að undirbúa
lendingu“, segir konan.
Eftir fyrstu tilkynninguna frá flugstjóranum þá héldu einhverjir farþegar að eitthvað væri að vélinni en flugstjórinn
neyddist til að segja ástæðuna sem var sú að flugliðarnir voru ekki búnir að gera farþegarýmið tilbúið fyrir lendingu.
„Þær voru greinilega ekki búnar að ná að gera allt því þær voru ennþá standandi þegar vélin var að fara lenda“, segir
einn farþeginn.
Ein kona sagði að hún myndi aldrei fljúga aftur með lágfargjaldarfélagi þar sem þessi reynsla hafði hrætt
átta ára son hennar.
Í tilkynningu frá easyJet segir að flug EZY8706 hefði þurft að fara í „go around“ þar sem farþegarýmið
var ekki tilbúið fyrir lendingu á tilsettum tíma en fram kemur að öryggi farþega hafi þrátt fyrir það verið í lagi
allan tímann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.