flugfréttir

Koma farþegum burt frá Gambíu vegna óvissuástands í landinu

20. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:37

Boeing 757 þota Thomas Cook á flugvellinum í Banjul

Nokkur evrópsk flugfélög og ferðaskrifstofur ætla að hætta tímabundið flugi til Gambíu í Afríku þar sem mikil spenna hefur myndast í landinu eftir forseti landsins neitar að víkja úr stóli fyrir nýkjörnum forseta.

Óvissuástand hefur verið í Gambíu í kjölfar forsetakostninga sem fram fóru í landinu í desember eftir að Adama Barrow varð óvænt kosinn forseti landsins en Yahya Jemmeh hefur gengt embættinu frá árinu 1994.

Senegal hefur nú sent herlið inn í landið og þá ætla stjórnvöld í Nígeríu einnig að senda sitt herlið til að skakka leiðinn en vegna ástandsins hafa flugfélög á borð við Thomas Cook bætt við níu aukaflugferðum til Banjul til að koma ferðamönnum heim sem fyrst en talið er að 3.500 Bretar eru nú í fríi í Gambíu.

Thomas Cook hefur frestað öllu flugi til Gambíu frá og með deginum og dag og þá hefur TUIfly einnig bætti við flugferðum til að koma um 330 Belgum til síns heima.

Þá hefur TUIfly í Hollandi einnig skipulagt sérstakar flugferðir til Gambíu til að koma 815 Hollendingum heim.

Ekki eru öll flugfélög sem ætla að draga sig frá Banjul en spænska flugfélagið Binter Canarias segir að félagið muni halda áfram að fljúga til Gambíu frá Las Palmas.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga