flugfréttir
Íranir stefna á viðamiklar flugvallarframkvæmdir
- Gera samninga við þýsk fyrirtæki
Íranir stefna á viðamiklar flugvallarframkvæmdir í landinu enda veitir ekki af þar sem írönsk stjórnvöld hafa pantað yfir 100 farþegaþotur í kjölfars afnám viðskiptahafta.
Iran Airports Company (IAC), rekstaraðili flugvalla í Íran, hefur undirritað nokkra samnings við mismunandi
fyrirtæki í tengslum við umfangsmikil verkefni í flugvallarframkvæmdum.
Meðal annars hefur verið gerður samningar við stjórn flugvallanna í Munchen og Frankfurt og þá hefur verið samið við Dornier Consulting
Internatinal vegna samstarfs við ráðgjöf.
Þá hefur IAC einnig hafið viðræður við frönsk og ítölsk fyrirtæki vegna verkefna á sviði starfsmannaráðninga
og þjálfun starfsmanna, vegna áætlanagerðar vegna flugvallarreksturs, þróun innviða og uppsetningu
á nútíma tölvukerfi.
Frá flugvellinum í borginni Tabriz
Þá þarf að gera samninga vegna atriða er snúa að uppsetningu á tækjabúnaði á flugvöllunum, við flugbrautir, merkingar
auk blindflugskerfis og þá munu Íranir einnig fá aðila til að sjá um uppsetningu á kerfi sem heldur utan
um rekstur og stjórnun flugvallarins auk búnaðs vegna flugumferðarstjórnunar.
Þýsk fyrirtæki munu koma að framkvæmdum m.a. á Tabriz-flugvellinum með nýrri flugstöð auk þess
sem til stendur að hefja framkvæmdir á nýjum flugvöllum í borgunum Chabahar og Ahvaz.
Þá er einnig talið að kínverskir og japanskir fjárfestar muni koma að flugvallarframkvæmdunum en gert er ráð fyrir að viðræðum muni ljúka við flesta aðila á þessu ári.
Írönsk stjórnvld ætla að gera endurbætur öllum flugvöllum landsins þar sem skipt verður út eldri tækjum, búnaði
og tólum til að tryggja hámarksöryggi í flugsamgöngum í framtíðinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.